Kominn tími til!
Ætli það sé ekki komin tími á smá bull enda margt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast og sumir farnir að saka mann um bloggleti. Ég fór til Köben í byrjun apríl og hitti þar mömmu auk þess sem að pabbi var með okkur í bláendanum af ferðinni. Maggi kláraði síðan prófið sitt um miðjan apríl og byrjaði í praktík í Árósum þannig að núna brunum við hjónin saman þangað á hverjum degi sem þýðir að ég er búin að missa einokunarvaldið sem ég hafði yfir útvarpinu í bílnum!
Ingi skáfrændi kom til okkar í helgarheimsókn í byrjun maí og fóru frændurnir saman í innkaupaleiðangur niður í bæ þar sem elsku bíllinn okkar tók upp á því að bila á miðjum gatnamótum. En þeir nenntu nú ekki að stressa sig mikið yfir því heldur hringdu bara á Falck og skelltu sér svo á barinn.
Í skálinni á borðinu er að finna það nýjasta sem Maggi hefur fangað í garðinum okkar en það er froskur sem er búinn að dunda sér þar síðustu vikurnar. Við höfum ekki komið okkur í það að "sleppa" honum aftur út í náttúruna því að hann virðist vera aðeins fatlaður greyið en erum nú samt ekki til í að halda hann sem gæludýr enda getum við ekki tekið við öllu sem kemur úr garðinum. Þetta fer að verða vandræðalegt, það er farið að kalla Magga Dagfinn dýralækni!
Um síðustu helgi fórum við í helgarferð til Köben og fengum þar góða gistingu hjá Kristínu og Fabian en þar gistu líka Alfreð, Björk og Pétur.
Pési prakkari tók vel á móti okkur þegar við komum.
Myndarlegir feðgar
Fabian með aðaltöffarana í Köben - Alexandre og Pétur!
Björk, Pétur og Maggi spennt að vera komin í Tívolí þrátt fyrir smá rigningu.Á laugardagskvöldið fórum við síðan að sjá útskriftarsýningu Ylfu og Davíðs "True love" en það var nú megintilgangur ferðarinnar.
Pétur stóð sig vel í að vekja Magga á morgnana.
Eins og sjá má reynum við Pétur alltaf að vera í stíl! :-)
Síðast þriðjudag vorum við boðin í grill til Söruh og Jakobs en í því fólst að Maggi þurfti að sjá um grillmennskuna - Sophie fylgdist þolinmóð með hvort eitthvað mundi detta af.
Sarah fylgdist líka vel úr eldhúsglugganum
en Emma bara skríkti og hló á meðan þessu stóð.
Jakob kom svo tímanlega heim - þegar eldamennskan var búin!

3 Ummæli:
Mikið rosalega eru Magnús og Ingi lagnir við að laga bíla. Er ekki búið að kaupa flugmiða handa Einari þannig að hann geti lagað bílinn fyrir ykkur. En það er mjög gaman að þú skulir vera farinn að blogg aftur.
Kveðja
Tómas
þriðjudagur, maí 29, 2007 12:49:00 f.h.
Nei Tómas, það var bara mun betra að láta Auto Mester Horsens laga þetta. Hefði nú ekki verið mikið mál ef ekki hefði verið fyrir 3 mismunandi tegundir af mögulegum varahluta stykkjum og 1 lykil sem er algjört sérverkfæri og ekki einu sinni Pabbi hefði getað smíðað.
miðvikudagur, maí 30, 2007 8:43:00 e.h.
Hæ skvís - Chan-Chan girl!
Langaði bara að kasta kveðju á ykkur.. allt of langt síðan við höfum heyrst. Ég vona að þið hafið það sem allra best. Ég hlakka ekkert smá til að hitta ykkur í ágúst:) En ég heyri nú alveg pottþétt í þér fyrir það. Hringi fljótlega í þig, sæta mín.
kær kveðja,
The other CHAN CHAN girl;)
þriðjudagur, júní 26, 2007 3:19:00 e.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim