föstudagur, apríl 06, 2007

Stína Poppins


Ég brá mér í barnapíu-hlutverk um daginn og passaði dóttur Söruh, rúsínuna hana Emmu.
Og svo til að auka við ábyrgðina þá var ég líka að líta eftir hvolpunum hennar Sophie sem hún eignaðist fyrir 2 mánuðum. Þeir voru 6 en það er búið að selja einn núna og hinir verða seldir núna á næstu dögum.

Fyrst voru þeir mjög rólegir en þegar ég kíkti út í garð til þeirra þá færðist fjör í leikinn
Og ekki batnaði það þegar móðirin blandaði sér í málin.
Við spáðum mikið í að taka einn af hvolpunum en ákváðum á endanum að við hefðum ekki nógu mikinn tíma núna til að sinna því en það var erfitt að sleppa því þar sem þeir eru alveg hrikalega sætir!

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Gvuð minn almáttugur!!!!! Er til eitthvað sætara en hvolpar??? Ég hefði líklega vanrækt barnið....

Kveðja Álfheiður

...sem er að horfa á Beverly Hills í letikasti...en ekki segja neinum!

föstudagur, apríl 06, 2007 7:01:00 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hafðu ekki áhyggjur, Álfa ég verð þögul sem gröfin....

föstudagur, apríl 06, 2007 11:04:00 e.h.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim