föstudagur, apríl 06, 2007

Stína Poppins


Ég brá mér í barnapíu-hlutverk um daginn og passaði dóttur Söruh, rúsínuna hana Emmu.
Og svo til að auka við ábyrgðina þá var ég líka að líta eftir hvolpunum hennar Sophie sem hún eignaðist fyrir 2 mánuðum. Þeir voru 6 en það er búið að selja einn núna og hinir verða seldir núna á næstu dögum.

Fyrst voru þeir mjög rólegir en þegar ég kíkti út í garð til þeirra þá færðist fjör í leikinn
Og ekki batnaði það þegar móðirin blandaði sér í málin.
Við spáðum mikið í að taka einn af hvolpunum en ákváðum á endanum að við hefðum ekki nógu mikinn tíma núna til að sinna því en það var erfitt að sleppa því þar sem þeir eru alveg hrikalega sætir!

miðvikudagur, apríl 04, 2007

Brussels baby!

Ferðin til Brussel var frábær og ég skemmti mér alveg konunglega. Við Linda lögðum í hann á laugardeginum og gistum eina nótt í Köben í góðu yfirlæti hjá Davíð og Ylfu þó við náðum því miður ekki að eyða miklum tíma með þeim. Vöknuðum síðan snemma á sunnudagsmorguninn til að fara út á Kastrup þar sem beið okkar lengsta tjékk-inn röð sem ég hef séð þar en við náðum nú öllu á góðum tíma.


Hér erum við Ane sama dag og við komum til Brussel. Eins og sjá má var svolítið kalt að sitja úti en við létum okkur hafa það.



Það var mikið af fallegum gömlum byggingum í miðbænum.


Flesta dagana fengum við reyndar alveg brilljant veður – sólskin og hlýtt.

Tuperna, Linda, Ane og Jannie að slappa af.


Ég og Linda í European Council. Vegna manneklu vorum beðnar um að taka að okkur að vera staðgenglar fyrir Austurríki og Búlgaríu :-)


Við fórum og skoðuðum þessa byggingu sem kallast Atomium og var byggt fyrir heimssýninguna 1958.

Linda á leiðinni upp á milli kúla.


Við fórum út að borða á hverju kvöldi, alltaf á nýja veitingastaði. Hér má sjá hluta af hópnum (Ane, Tuperna, ég, Mai, Anna, Jannie, Linda (íslenska) og Linda (danska)) á grískum veitingastað þar sem við þóttum svo skemmtilegar að við vorum beðnar um að koma aftur kvöldið eftir (sem við gerðum reyndar ekki).

Í heildina litið var þetta alveg stórskemmtileg ferð í fallegri borg sem kom mér á óvart með fjölbreytileika sínum. Mér fannst ég læra mikið á því að fara í þessar heimsóknir, sérstaklega European Council, European Commission og European Parliament í stað þess að lesa bara um það í þurrum skruddum. Hostelið sem vorum á var betra en ég átti von á og ekki skemmdi fyrir að við Linda fengum eina 2ja manna herbergið, allir hinir voru í 4ja eða 6 manna herbergjum og fengum við því viðurnefnið prímadonnurnar. En við tókum bara þá stefnu að standa undir þeim titli! Heimferðin var ekki eins skemmtileg því ég var orðin veik og var skjálfandi úr kulda í lestinni til Horsens og var það því grár og gugginn sjúklingur sem Maggi tók á móti á lestarpallinum.