Komin upp til að anda!
Ok, kannski smá dramatískt en þannig leið mér á þriðjudaginn þegar ég kláraði síðasta prófið. Þessar rúmlegu 3 vikur sem fóru í að skrifa 2 lokaritgerðir voru alveg að gera út af við mig og svo er núna er bara tekin við bið að sjá hvernig gekk í þessum blessuðu kúrsum.
Annars höfðum við það rosalega gott um jólin, hittum fullt af fólki, fórum í matarboð, út að borða, átum yfir okkur (að sjálfsögðu – það voru jólin), fengum fullt af góðum gjöfum og reyndum svo að læra þegar tími gafst til. En aðaltímaþjófurinn má segja að hafi verið litla gullið hann Róbert frændi enda fær maður nú aldrei nóg af því að knúsa hann.
Annars höfðum við það rosalega gott um jólin, hittum fullt af fólki, fórum í matarboð, út að borða, átum yfir okkur (að sjálfsögðu – það voru jólin), fengum fullt af góðum gjöfum og reyndum svo að læra þegar tími gafst til. En aðaltímaþjófurinn má segja að hafi verið litla gullið hann Róbert frændi enda fær maður nú aldrei nóg af því að knúsa hann.
Litla krúsidúllan
Fórum í frábært matarboð hjá Álfheiði á Holtsgötunni
Kíktum í heimsóknir í Núpalindina þar sem var í boði góður matur, góðir drykkir og misgóð spilamennska!
Ragna og Ágústa komu í heimsókn til að kveðja okkur og þá varð Róbert alveg hugfanginn af Ágústu sem fannst nú ekki leiðinlegt að fá svona athygli.
Við eyddum síðan áramótunum í Óðinsvéum hjá Albert, Siggu og Söru Bergdísi ásamt Hjalta, Jóhönnu og Leonóru og höfðum við það rosalega gott þar þrátt fyrir að það gætti smá slappleika hjá Magga um kvöldið.
Allir að drífa sig út til að skjóta upp flugeldum
Spennan í hámarki....
... þó voru sumir spenntari en aðrir!
Annars höfum við haft nóg að gera núna í janúar fyrir utan lærdóminn. Fyrir 2 vikum var haldið partý hjá Nonna, skólafélaga Magga, og Soffíu konu hans fyrir alla Íslendinga sem eru á sömu önn og Maggi því fljótlega mun hópurinn splittast upp þegar hann fer í praktík út um allar trissur. Á síðasta þriðjudag hitti ég bekkinn minn í Árósum til að fagna próflokum. Ég hélt að þetta yrði nú bara smá hittingur með nokkrum bjórum þar sem þetta væri í miðri viku en úr þessu varð heljarinnar skrall og var ég alveg að til kl. 4 um nóttina. Þá er nú gott að eiga góða að eins og hana Lindu mína sem ljáði mér gistingu hjá sér. Síðasta helgi var síðan gönguhelgin mikla, Sophie hundurinn hennar Söruh var í pössun hjá okkur og var farið með hana í göngutúra víðsvegar um bæinn þó aðallega hér um Stensballe.
Um næstu helgi verður síðan nóg að gera, Brussels-partý á föstudaginn í Árósum, á laugardaginn munum við renna til Óðinsvéa að hjálpa Albert og Siggu að hlaða í gáminn þar sem þau eru að flytja aftur á klakann og um kvöldið erum við að fara í fertugsafmæli hjá skólafélaga Magga. Svo á sunnudaginn koma Alfreð, Björk og Pétur að heimsókn til okkar í 3 nætur – hlakka svo til að hitta þau!








3 Ummæli:
Sæl skvís!
Það er aldeilis nóg að gera hjá ykkur! Ég er nú alveg viss um að þér hafi gengið vel með kúrsana, held að þú þurfir nú ekkert að hafa áhyggjur af þeim. Ég verð nú svo að fara að bjalla í ykkur skötuhjú:)
knús og kossar,
þín vinkona,
Guðrún Brynja
þriðjudagur, janúar 30, 2007 4:52:00 e.h.
Jú elsku Guðrún þú hafðir rétt fyrir þér! - ert svo klár
;-) Búin að fá að vita einkunnirnar og heldurðu að mín hafi bara ekki náð öllu - var ekki alveg viss með einn kúrsinn en það gekk víst betur en ég hélt! :-)
þriðjudagur, janúar 30, 2007 10:32:00 e.h.
Elsku Kristín og Gnúsi,
takk kærlega fyrir mig, ekkert smá flott, núna verð ég algjör pæja.
Kv. Ágústa Birna
P.s mamma og pabbi biðja líka að heilsa ykkur
sunnudagur, febrúar 04, 2007 12:22:00 f.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim