Jóla hvað?

Það er nú alveg hrikalega krúttlegt að fyrsta sem ég sá þegar ég fór á klósettið í morgun var “múmbútts” út í glugga. Sara Bergdís gisti hjá okkur í nótt ásamt foreldrum og ákvað hún að baðherbergisglugginn væri sá aðgengilegasti fyrir jólasveininn til að setja í skóinn hennar. Hún var víst búin að láta hann vita að hún yrði ekki í Óðinsvéum í nótt.
Ég fór í próf í fyrradag í Nordic perspectives og það hefði nú alveg mátt ganga betur en það verður víst bara að hafa það. Dagurinn í dag verður tekinn í afslöppun og svo verður hafist handa við ritgerðarskrif í næstu viku. Síðan er aldrei að vita nema við hjónakornin skellum okkur í smá ferðalag út fyrir bæjarmörkin á morgun. :-)

1 Ummæli:
Er ekki kominn tími á nýjar fréttir frá Danaveldi ?
Kv.
Ragna
miðvikudagur, janúar 10, 2007 11:25:00 e.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim