laugardagur, desember 16, 2006

Jóla hvað?


Það er nú alveg hrikalega krúttlegt að fyrsta sem ég sá þegar ég fór á klósettið í morgun var “múmbútts” út í glugga. Sara Bergdís gisti hjá okkur í nótt ásamt foreldrum og ákvað hún að baðherbergisglugginn væri sá aðgengilegasti fyrir jólasveininn til að setja í skóinn hennar. Hún var víst búin að láta hann vita að hún yrði ekki í Óðinsvéum í nótt.

Ég fór í próf í fyrradag í Nordic perspectives og það hefði nú alveg mátt ganga betur en það verður víst bara að hafa það. Dagurinn í dag verður tekinn í afslöppun og svo verður hafist handa við ritgerðarskrif í næstu viku. Síðan er aldrei að vita nema við hjónakornin skellum okkur í smá ferðalag út fyrir bæjarmörkin á morgun. :-)