Tilgangslaust sjálfspróf
Rakst á þetta sniðuga próf á bloggi gamals vinnufélaga um hvaða tónlist verður spiluð í epísku stórmyndinni með sjálfævisögulegu ívafi sem ég mun framleiða, leikstýra og leika aðalhlutverið.
1. Opnaðu spilarann sem þú notar (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)
1. Opnaðu spilarann sem þú notar (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)
2. Settu á shuffle
3. Ýttu á spila(play)
4. fyrir hverja spurningu seturðu það lag sem er að spilast
5. Þegar þú ferð í næstu spurningu, ýtirðu á next takkann fyrir næsta lag.
6. Ekki svindla og þykjast vera kúl settu inn hvaða lag kemur…
*********ÆVINTÝRI STÍNU SIGGU***************
Opening Credits: Are you gonna be my girl - Jet
Waking: Now I´m here - Queen
First Day At School: Holding out for a hero – Bonnie Tyler
Falling In Love: The great gig in the sky – Pink Floyd
Fight Song: The Sign – Ace of Base (alveg hrikalegt barráttulag!!)
Breaking Up: Okkar nótt – Sálin hans Jóns míns
Prom: She´s a rebel – Green day
Getting Back Together: Hand in my pocket – Alanis Morrisette
Birth of Child: How deep is your love – Bee Gees
Final Battle: In the Name of the Father – Bono & Garvin Friday
Death Scene: Freak out – Avril Lavigne (jamm, á vel við....)
Funeral song: I´m a greedy man – James Brown (hmmm.... persónan mín verður örugglega rík í sögunni...)
End Credits: Wanted Man – Johnny Cash
Já það sem maður gerir ekki þegar maður á að vera að læra, tilgangslaus sjálfspróf koma greinilega sterk inn!
Síðasta fimmtudag fór ég í jólapartý hjá danskri skólasystur minni þar sem allir áttu að koma með þjóðlega jólarétti og litlar jólagjafir því farið var í pakkaleik að dönskum sið sem er öðruvísi heldur en var á litlu jólunum þegar maður var í barnaskóla því þessi leikur fólst í því að kasta teningi og þegar maður fékk sexu þá gat maður stolið pakka frá hinum. Á tímabili var ég komin með 3 pakka en þegar tíminn var útrunninn þá endaði ég einungis með einn. Við fórum síðan nokkur saman niður í miðbæ þar sem fjörið hélt áfram og ég fékk síðan að gista hjá Lindu vinkonu.
Þrátt fyrir að vera búin að fara í jólapartý þá er ég nú ekki komin í neitt jólaskap, það kannski stafar af því að það er ekki mjög jólalegt úti. Oftast er rigning hérna og hitastigið á bilinu 7-10 gráður en maður ætti nú ekki að kvarta yfir því þegar maður heyrir hvernig veðrið er búið að vera á Íslandi. Einnig held ég að ég muni hafa lítinn tíma til að komast í jólaskap því að hátíðarnar þetta árið verða undirlagðar af ritgerðarskrifum. Ég fer í eitt munnlegt próf eftir 2 vikur og síðan eru það 2 ritgerðir sem á að skila í janúar. Ég fæ síðan nokkra daga frí í janúar (en þá lýkur haustönninni hjá mér) en til að toppa þetta verður eiginmaðurinn í fríi fyrstu vikuna í febrúar þegar vorönnin byrjar hjá mér þannig að það verður lítið um sameiginlegt frí hjá okkur þetta árið.
Að lokum vil ég síðan óska elsku bestu mömmu til hamingju með afmælið í dag. Þrátt fyrir að hún sé orðin tvöföld amma þá er nú ekki að sjá á henni að hún eldist neitt! :-)







