miðvikudagur, október 11, 2006

Viltu vinna milljón?

Fékk þetta skemmtilega bréf frá Spáni í póstinum í morgun (ekki e-mail, heldur gamla góða bréfapóstinum):
Award notification
This is to inform you of the release of the LA PRIMITIVA LOTTERY PROMOTIONS PROGRAM held on the 27th of September 2006. You have been approved a payment of 615,810.00 EURO in cash. This is from a total cash prize of 9.237.150.00 EURO shared among the (Fifteen international winners in this category) CONGRATULATIONS!!!
Your fund is now deposited with a security company insured in your name. Due to false practices, we ask that you keep your award information strictly from public notice,until your claim has been processed and money remitted to your possession as this is part of our security protocol to avoid double claiming or unwarranted abuse of this program by unscrupulous individuals.
Svo í lokin er ég beðin um að gefa upp þessa "almennu" upplýsingar um mig (heimilisfang, staða, símanúmer og banka-reikningsnúmer) og nánasta aðstandanda sem og ég gerði auðvitað samviskusamlega og skellti í póst. Meðan ég gerði það þá fór ég nú að velta því fyrir mér að það væri skrýtið að fá lottó-vinning þar sem ég hafði nú aldrei tekið þátt en ég var fljót að hrista þá hugsun frá mér. Við hjónin ákváðum svo bara að láta slag standa og keyptum okkur sumarhús á Aruba og er planið að fagna jólunum þar í ár - allir velkomnir!!!

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

hehe hefði auðvitað gert það sama maður!! NOT ;)

væri samt alveg til í að skreppa til Aruba... segi það ekki :)

laugardagur, október 14, 2006 9:32:00 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Aruba það hljómar alls ekki illa, kannski að ég leggi bara land undir fót.

fimmtudagur, október 26, 2006 6:52:00 e.h.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim