miðvikudagur, október 11, 2006

Viltu vinna milljón?

Fékk þetta skemmtilega bréf frá Spáni í póstinum í morgun (ekki e-mail, heldur gamla góða bréfapóstinum):
Award notification
This is to inform you of the release of the LA PRIMITIVA LOTTERY PROMOTIONS PROGRAM held on the 27th of September 2006. You have been approved a payment of 615,810.00 EURO in cash. This is from a total cash prize of 9.237.150.00 EURO shared among the (Fifteen international winners in this category) CONGRATULATIONS!!!
Your fund is now deposited with a security company insured in your name. Due to false practices, we ask that you keep your award information strictly from public notice,until your claim has been processed and money remitted to your possession as this is part of our security protocol to avoid double claiming or unwarranted abuse of this program by unscrupulous individuals.
Svo í lokin er ég beðin um að gefa upp þessa "almennu" upplýsingar um mig (heimilisfang, staða, símanúmer og banka-reikningsnúmer) og nánasta aðstandanda sem og ég gerði auðvitað samviskusamlega og skellti í póst. Meðan ég gerði það þá fór ég nú að velta því fyrir mér að það væri skrýtið að fá lottó-vinning þar sem ég hafði nú aldrei tekið þátt en ég var fljót að hrista þá hugsun frá mér. Við hjónin ákváðum svo bara að láta slag standa og keyptum okkur sumarhús á Aruba og er planið að fagna jólunum þar í ár - allir velkomnir!!!

sunnudagur, október 01, 2006

And the winners are......dudududumm!!!

Það eru komnir sigurvegarar í keppninni sætustu frændurnir en það eru septembertöffararnir Hr. Freysson og Hr. Alfreðsson. Seinni frændi vildi nú ekki láta bíða alltof lengi eftir sér svo hann snaraði sér í heiminn 18. september þannig að það eru einungis 12 dagar á milli þeirra. Mikið hlakka ég til að fá að sjá þá og knúsa þá og láta þá vita hver sé uppáhaldsfrænkan þó að ég viti að Ylfa muni veita mér harða keppni um titilinn hjá öðrum þeirra en hjá hinum er þetta alveg öruggt!
Sæti frændi Freysson nýkominn í heiminn

Það er bara komin október og komin ný mynd á Ágústu-dagatalið okkar. Það má með sanni segja að tíminn líður alltof hratt. Ég er núna búin að vera 4 vikur í skólanum og mér finnst bara eins og ég hafi byrjað í gær. Verkefnin eru farin að hellast yfir okkur og akkúrat núna á ég að vera skrifa verkefni um kenningu sem franski heimspekingurinn Michel Foucault setti fram á síðustu öld. En eins og kannski sjá má þá fannst mér núna vera alveg upplagður tími til að skella inn einni bloggfærslu :-) Alveg ótrúlegt hvað maður finnur sér alltaf að gera þegar maður á að vera að læra.

Álfheiður var hjá okkur um síðustu helgi og það var alveg frábært – ekki skemmdi heldur fyrir allt íslenska nammið sem hún kom með (kjamms kjamms). Við Sophie tókum á móti henni á lestarstöðinni á föstudeginum og um kvöldið komu Hjalli og Tóti (grúppufélagar Magga) og borðuðu með okkur auk þess sem að Soffía og Jón litu í heimsókn. Á laugardeginum voru Árósar teknir með trompi eða á ég heldur að segja að H&M hafi verið tekið með stæl auk þess sem að nokkrar fleiri búðir fengu svona að slæðast líka með til að krydda upp á flóruna. Á sunnudeginum var tekinn rúntur um helsta nágrenni Horsens, gengið upp á Himmelbjerget og Sukkertoppen og hádegismatur í Silkeborg. Á mánudaginn skoðuðum við Horsens og um kvöldið kíktum við í heimsókn til Söruh og Jakobs og spiluðum Sequence við þau og foreldra Söruh. Síðan skutlaði ég Álfheiði á lestarstöðina á þriðjudagsmorgninum áður en ég fór í skólann og var það mikill söknður að sjá á eftir henni :-(
Shop til we drop!! Spurning hvað Jóhann segir um þetta..
Álfa komin upp á Himmelbjerget

Við vinkonurnar á leiðinni á Sukkertoppen....
...og komnar á toppinn!
Maggi tók þátt í golfmóti Íslendingafélagsins í gær en náði nú ekki í nein verðlaun í þetta skiptið. Þetta var síðasta golfmót sumarsins og því var haldið grillpartý eftir að mótinu lauk. Ég ákvað nú að taka ekki þátt í mótinu því ég vildi nota tímann til að læra (hóst*) en fór og hitti liðið í matnum eftirá.

Best að fara að skella sér í lærdóminn, þessi skrif gerast víst ekki af sjálfum sér!