Faster Stína
Kominn tími á smá skrif – Stærstu fréttirnar eru að ég er orðin föðursystir. Litli sæti frændi Alfreðsson fæddist 6. september eftir að hafa látið bíða eftir sér í 12 daga. Hann átti að koma í heiminn á afmælisdeginum mínum en ákvað frekar að fæðast á afmælisdegi Kristjáns langafa síns.

Svo er bara að bíða eftir að næsti sæti frændi komi í heiminn en Freyssonur á að fæðast 1. október eða þá er allavega Eliisa mágkona sett, spurning hvenær hann ákveður að láta sjá sig!

Ég er búin að vera núna 2 vikur í skólanum og líst bara vel á. Það eru einungis 3 fög á þessari önn en það verður heilmikill lestur auk nokkurra verkefna þannig að ég hef nú engar áhyggjur af því að hafa ekki nóg að gera. Það er kominn nokkur tími síðan ég var síðast í skóla (2 ½ ár) þannig að það tekur smá tíma og þó nokkuð átak að komast sér í lærdómsgírinn, að sitja yfir bókunum í marga klukkutíma. Þetta er ekkert eins og þegar ég var í dönskuskólanum í vor þar sem maður rumpaði heimalærdómnum (ef hann var einhver) af á innan við klukkutíma.
Á föstudaginn fórum við og fengum okkur nýtt sjónvarp eftir að lá við að það hefði kviknað í því gamla á fimmtudaginn. Það var búið að vera að stríða okkur undanfarna mánuði, oft að slökkva á sér af sjálfsdáðum, það má kannski rekja til þess að það hefur nokkrum sinnum fengið smá skelli (dottið í gólfið) en í fyrradag fóru að heyrast ýmsir konar brestir og blossahljóð og að lokum lagði megna brunalykt upp úr því og þar af leiðandi var það úrskurðað látið.
Hér er búið að vera ágætt veður að undanförnu, 20-24 gráður ekki alveg haustveður eins og maður á að venjast frá Íslandi en ég allavega kvarta ekki, það er frábært að geta mætt í skólann á stuttermabol og berleggjaður í pilsi!

Confessions on a dancefloor - alveg geðveikir tónleikar!! Hér má sjá afmælisbarnið alsælt eftir upplifunina.

Við skelltum okkur á Miðaldahátíð sem var haldin í miðbænum og þar fékk eiginmaðurinn sér þá einu stærstu (og sérkennilegustu!!) pylsu sem ég hef séð.
Svo er ég farin að hlakka mikið til að fá hana Álfu mína í heimsókn en það verður á föstudaginn – can´t wait!!
