fimmtudagur, ágúst 24, 2006

Hátíðarhöld

Jæja, í dag er síðasti dagurinn sem ég get sagst vera tuttugu og eitthvað en á morgun er stóri dagurinn. Ég reyni að taka þessu með stóískri ró eins og mín er venja þó að mér sýnist broshrukkunum alltaf vera að fjölga. En til að fagna mínum síðasta degi sem twenty-something verða haldnir tónleikar hér í Horsens með ekki ómerkari listakonu heldur en MADONNU! Ég hlakka ekkert smá mikið til, er núna að hlusta á Like a prayer til að komast í gírinn. Hátíðarhöldin til heiðurs undirritaðri munu halda áfram hér í bænum næstu 2 daga en þá tekur Miðaldahátíðin við sem verður líka mikið húllum-hæ.
Á morgun mun líka gerast annar stórviðburður (vonandi!) en þá er hún Björk mágkona sett og ég reikna auðvitað með því að barnið komi á réttum degi :-) En ef barnið líkist eitthvað föðursystur sinni þá mun stundvísin ekki verða sterkasta hliðin hjá því.

Íslandsferðin hjá okkur var alveg frábær, það var gott að komast aðeins heim og knúsa alla fjölskyldumeðlimi og vini. Afmælispartýið hjá okkur gekk mjög vel og við þökkum kærlega fyrir alla frábæru gjafirnar sem við fengum. Ég vona bara að gestirnir hafi skemmt sér eins vel og við gerðum. Við hlökkum svo til að sjá alla þegar við komum næst til Íslands.

Við á Stokkseyri

Jæja hef þetta ekki lengra í bili, farin að klæða mig í glimmer-stuttbuxurnar og hjólaskautana.