Hótel Stína Sigga
Þá er skólaferli mínum í dönsku lokið, ég fór í prófið í lok júní og fékk strax að vita að ég hefði náð 2 hlutum (hlustun og lesskilningur) prófsins, svo er bara að sjá hvenær þeir senda mér niðurstöðurnar fyrir hinum 2 hlutunum (skriflega og munnlega hlutanum). Það er vonandi að þetta nám dugi manni restina af dvölinni hér í Danaveldi – allavega er ég komin langt fram úr eiginmanninum að tala við innfædda. Reyndar má nú segja að ég sé í munnlegri dönsku þegar ég er í vinnunni þó að það gangi nú svona misvel að skilja og að koma orðunum frá mér.
Gestagangurinn heldur áfram hér í Horsens, sæta fjölskyldan úr Núpalindinni kíkti til okkar í 5 daga heimsókn sem hefði nú alveg mátt vera lengri því dagarnir flugu framhjá okkur. Það var alveg eindæma blíða þá daga sem þau voru hérna enda var garðurinn mikið notaður við ýmis konar leiki á daginn og pallurinn á kvöldin þar sem setið var langt fram eftir nóttu og spilaður Kani.

Ágústa Birna mætt á svæðið.

Feðginin að njóta veðurblíðunnar, í bakgrunni má sjá fína tjaldhúsið hennar Ágústu.

Þorgerður, Sævar, Bjarni Leó og Aron Yngvi komu í mat til okkar og hér má sjá litlu grallarana halda fund í tjaldinu.

Það er alveg yndislegt að fá gesti sem eru svona myndarlegir í eldhúsinu og að grilla.... :-)

Við skelltum okkur í Legoland þar sem við vorum alveg að grillast úr hita milli þess sem við skelltum okkur í leiktækin.

Ragna og Ágústa á fljúgandi ferð.

Ágústa að kveðja Magga.
Guðrún Brynja kíkti svo í ör-heimsókn til okkar á föstudaginn og fór tilbaka í gær. Þó að þetta hafi verið stuttur tími sem hún var hérna þá var hann vel nýttur, mikið masað eins og okkur einum er lagið. En hún er búin að lofa að stoppa lengur hjá okkur næst og þá aldrei að vita hvort hún taki ekki Helga með þá!

Guðrún mætt með bjór í hönd.

Svo var tekin þessi fína mynd "brúðkaupsmynd" af okkur skvísunum!
Svo er það bara næsti gestur sem kemur til okkar annað kvöld en það er hún María Sif, litla systir. Við Maggi erum einmitt að spá í að skella okkur til Þýskalands á morgun til að ná í birgðir svo við verðum vel undirbúin fyrir komu hennar hingað!!

4 Ummæli:
Hæ hæ
Ég hélt ég þekkti öll ykkar systkini, er ég að missa af einhverju? :)
kv. Álfheiður
mánudagur, júlí 10, 2006 4:43:00 f.h.
Takk aftur fyrir mig elsku krúsídúllurnar mínar.. Og já, ég ætla mér sko að vera lengur næst og aldrei að vita að ég taki Helga með, kannski hann verði bara svona "surprise"-ið sem ég kem með, heheheh.. Mér fannst ekkert smá gaman að sjá ykkur og "dúkkuhúsið" ykkar fína, og alltaf jafn skemmtilegt að masa og masa um gamla og nýja tíma:) Sjáumst svo á klakanum í sumar.. knús, knús,
Gudda Budda
þriðjudagur, júlí 11, 2006 1:13:00 f.h.
Hehehehe Takk stora systir
þriðjudagur, júlí 11, 2006 12:35:00 e.h.
Þúsund þakkir fyrir okkur það var yndislegt að vera hjá ykkur og við viljum helst bara flytja til ykkar:-)
Ágústa hoppaði af gleði þegar hún var að skoða myndinar af ykkur skvísunum í garðinum.
Saknaðarkveðjur úr Núpalindinni.
miðvikudagur, júlí 12, 2006 12:45:00 f.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim