Fjölgun á heimilinu
Jæja, þá styttist í það að ég hætti að vinna og snúi mér að öðrum verkefnum en það er fyrst og fremst að slappa af í sumarfríinu mínu í ágúst og svo tekur ”alvara lífsins” við í september þegar skólinn byrjar.
Veðurblíðan heldur áfram að leika við okkur þessa dagana, stundum koma spár um rigningu en þær hljóða nú oftast upp á 1 mm og teljast því varla með – maður tekur varla eftir því þegar rigningin kemur.
Nú er María Sif komin og farin og það er spurning hvenær Jótland muni jafna sig á þessari heimsókn og er þá aðallega átt við Horsens og Árósa. Látum þetta bara gott heita um dvöl hennar hér, þeir sem óska eftir frekari fréttum er bent að hafa samband við ferðalanginn sjálfan. En við vonum bara að Færeyingarnir hafi skilað henni heim á klakann heil á höldnu.

Sophie var aftur hjá okkur í pössun um daginn, það er alltaf jafn gaman að hafa hana. Henni finnst líka mjög gaman að vera hjá okkur því að við erum að leika við hana eiginlega allan tímann. Ég hugsa þá oft hvað það væri gaman að eiga hund en ég held að það verði nú ekkert úr því.....samt aldrei að vita, veltur á því hvernig mér gengur að blikka eiginmanninn.


Það hefur fjölgað hér á heimilinu um tvo. Maggi reif upp tjörnina sem var í garðinum hjá okkur og ætlum við að setja niður blóm þar í staðinn. Fyrri eigandi var með gosbrunn og gullfiska í tjörninni og þegar hann flutti héðan þá hefur hann ekki náð öllum fiskunum upp úr tjörninni því að Maggi fann 2 gutta þar. Við skiljum nú ekki hvernig þeir lifðu af veturinn því að okkur sýndist nú að tjörnin væri frosin alveg niður á botn en þetta eru greinilega harðnaglar sem við höfum eignast. Núna eru þeir í bala út í garði en planið er nú að koma þeim í alvöru búr.

4 Ummæli:
hahahahahha ég held að þú og Maggi jafnið ykkur nú seint á komu minni til DK ;) En TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK TAKK fyrir mig ;) Núna vitið þið amk hvernig er að eiga vandræða ungling ;) Untill next time ;)
Litla Systir
þriðjudagur, júlí 25, 2006 12:43:00 f.h.
Hæ skvís! Já, það er aldeilis búið að vera mikið fjör og mikið af fólki hjá ykkur í sumar... Hlakka til að sjá ykkur á morgun:) knús, knús
mánudagur, júlí 31, 2006 3:37:00 e.h.
Það er hollt fyrir sálina að eiga fiska. Ég legg til nöfnin Davíð og Þorvarður á kvikyndin og njótið vel.
Gulli
mánudagur, júlí 31, 2006 5:59:00 e.h.
Ég hélt að frúin væri ólétt þegar ég las fyrirsögnina og hélt spennt áfram að lesa textann en komst þá bara að því að fjölgunin eru GULLFISKAR!!!!!!!!
Ég mæli með hundi á heimilið, ég er að reyna að blikka minn mann líka en gengur eitthvað lítið.
Kveðja Eva Dís
þriðjudagur, ágúst 08, 2006 12:47:00 f.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim