mánudagur, júlí 24, 2006

Fjölgun á heimilinu

Jæja, þá styttist í það að ég hætti að vinna og snúi mér að öðrum verkefnum en það er fyrst og fremst að slappa af í sumarfríinu mínu í ágúst og svo tekur ”alvara lífsins” við í september þegar skólinn byrjar.
Veðurblíðan heldur áfram að leika við okkur þessa dagana, stundum koma spár um rigningu en þær hljóða nú oftast upp á 1 mm og teljast því varla með – maður tekur varla eftir því þegar rigningin kemur.

Nú er María Sif komin og farin og það er spurning hvenær Jótland muni jafna sig á þessari heimsókn og er þá aðallega átt við Horsens og Árósa. Látum þetta bara gott heita um dvöl hennar hér, þeir sem óska eftir frekari fréttum er bent að hafa samband við ferðalanginn sjálfan. En við vonum bara að Færeyingarnir hafi skilað henni heim á klakann heil á höldnu.



Sophie var aftur hjá okkur í pössun um daginn, það er alltaf jafn gaman að hafa hana. Henni finnst líka mjög gaman að vera hjá okkur því að við erum að leika við hana eiginlega allan tímann. Ég hugsa þá oft hvað það væri gaman að eiga hund en ég held að það verði nú ekkert úr því.....samt aldrei að vita, veltur á því hvernig mér gengur að blikka eiginmanninn.




Það hefur fjölgað hér á heimilinu um tvo. Maggi reif upp tjörnina sem var í garðinum hjá okkur og ætlum við að setja niður blóm þar í staðinn. Fyrri eigandi var með gosbrunn og gullfiska í tjörninni og þegar hann flutti héðan þá hefur hann ekki náð öllum fiskunum upp úr tjörninni því að Maggi fann 2 gutta þar. Við skiljum nú ekki hvernig þeir lifðu af veturinn því að okkur sýndist nú að tjörnin væri frosin alveg niður á botn en þetta eru greinilega harðnaglar sem við höfum eignast. Núna eru þeir í bala út í garði en planið er nú að koma þeim í alvöru búr.

sunnudagur, júlí 09, 2006

Hótel Stína Sigga

Þá er skólaferli mínum í dönsku lokið, ég fór í prófið í lok júní og fékk strax að vita að ég hefði náð 2 hlutum (hlustun og lesskilningur) prófsins, svo er bara að sjá hvenær þeir senda mér niðurstöðurnar fyrir hinum 2 hlutunum (skriflega og munnlega hlutanum). Það er vonandi að þetta nám dugi manni restina af dvölinni hér í Danaveldi – allavega er ég komin langt fram úr eiginmanninum að tala við innfædda. Reyndar má nú segja að ég sé í munnlegri dönsku þegar ég er í vinnunni þó að það gangi nú svona misvel að skilja og að koma orðunum frá mér.

Gestagangurinn heldur áfram hér í Horsens, sæta fjölskyldan úr Núpalindinni kíkti til okkar í 5 daga heimsókn sem hefði nú alveg mátt vera lengri því dagarnir flugu framhjá okkur. Það var alveg eindæma blíða þá daga sem þau voru hérna enda var garðurinn mikið notaður við ýmis konar leiki á daginn og pallurinn á kvöldin þar sem setið var langt fram eftir nóttu og spilaður Kani.

Ágústa Birna mætt á svæðið.


Feðginin að njóta veðurblíðunnar, í bakgrunni má sjá fína tjaldhúsið hennar Ágústu.


Þorgerður, Sævar, Bjarni Leó og Aron Yngvi komu í mat til okkar og hér má sjá litlu grallarana halda fund í tjaldinu.




Það er alveg yndislegt að fá gesti sem eru svona myndarlegir í eldhúsinu og að grilla.... :-)


Við skelltum okkur í Legoland þar sem við vorum alveg að grillast úr hita milli þess sem við skelltum okkur í leiktækin.


Ragna og Ágústa á fljúgandi ferð.


Ágústa að kveðja Magga.

Guðrún Brynja kíkti svo í ör-heimsókn til okkar á föstudaginn og fór tilbaka í gær. Þó að þetta hafi verið stuttur tími sem hún var hérna þá var hann vel nýttur, mikið masað eins og okkur einum er lagið. En hún er búin að lofa að stoppa lengur hjá okkur næst og þá aldrei að vita hvort hún taki ekki Helga með þá!


Guðrún mætt með bjór í hönd.


Svo var tekin þessi fína mynd "brúðkaupsmynd" af okkur skvísunum!

Svo er það bara næsti gestur sem kemur til okkar annað kvöld en það er hún María Sif, litla systir. Við Maggi erum einmitt að spá í að skella okkur til Þýskalands á morgun til að ná í birgðir svo við verðum vel undirbúin fyrir komu hennar hingað!!