föstudagur, júní 09, 2006

Twenty-something....

Þegar við fluttum frá Íslandi þá átti ég von á að maður mundi upplifa fullt af nýjum hlutum og það hefur alveg gengið eftir. Maður lærir nýtt tungumál (eða rifjar það upp síðan maður lærði það í skóla!), kynnist fullt af fólki alls staðar að úr heiminum og aðlagast nýju samfélagi sem er að mörgu leyti líkt því sem maður kom frá en að mörgu leyti líka mjög ólíkt. En aldrei átti ég von á því að það að flytja erlendis mundi yngja mig! Þegar ég tala við samnemendur mína í sprog-skólanum og minnist á eiginmann minn þá verður fólk oft gáttað á því að ég skuli vera búin að gifta mig svona ung! Hér halda flestir að ég sé 23 - 24 ára (sem er svo sem ekki slæmt í sjálfu sér :-). Þannig að ég mæli með þessu við sem flesta – flytja erlendis til að yngja sig upp. Kannski ég ætti að fara að huga að því að flytja eitthvert annað þegar ég verð fertug svo ég geti þá talist vera þrítug!

6 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ha ert þú ekki 23 ára!!!

sunnudagur, júní 11, 2006 1:39:00 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Brilljant.. ekki slaemt ad vera 23-24 ara gomul:) Ja, madur aetti ad athuga thetta, flytja alltaf a nyja stadi a ca. 10 ara fresti.. hehehe... thad vaeri svo sem ekki leidinlegt! Eg er i Strassborg thessa stundina en er strax farin ad hlakka til naestu ferdar thvi tha fae eg ad sja ykkur og litla dukkuhusid ykkar:) knus knus..

sunnudagur, júní 11, 2006 10:35:00 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Brilljant.. ekki slaemt ad vera 23-24 ara gomul:) Ja, madur aetti ad athuga thetta, flytja alltaf a nyja stadi a ca. 10 ara fresti.. hehehe... thad vaeri svo sem ekki leidinlegt! Eg er i Strassborg thessa stundina en er strax farin ad hlakka til naestu ferdar thvi tha fae eg ad sja ykkur og litla dukkuhusid ykkar:) knus knus..

sunnudagur, júní 11, 2006 10:35:00 e.h.

 
Blogger Mjallhvit sagði...

tja... þú ert bara 23 er þaggi...... ef einhvur spyr þá er þetta bara prentvilla á fæðingarvottorðinu þínu :)

miðvikudagur, júní 14, 2006 4:01:00 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég kannst við þetta, hef jafnan þótt mjög ungleg líka. Fólk rekur upp stór augu þegar það kemst að því að ég á barn. En við hljótum að vera í góðum málum í heimi þar sem þættir á borð við "10 árum yngri á aðeins 10 dögum" eru vinsælt sjónvarpsefni.
Sjáumst á föstudaginn. Kveðja Sigga

miðvikudagur, júní 14, 2006 6:59:00 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Þetta er bara plús að vera svona unglegur. Ég held að Magga finnist þetta ekki slæmt heldur!

miðvikudagur, júní 14, 2006 9:04:00 e.h.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim