Hitabylgja!
Síðastliðna daga hefur verið of heitt til að stunda tölvuna, handleggirnir límast við skrifborðið, fingurnir við lyklaborðið og svitapollur myndast við skrifborðsstólinn. Fyrir svona víkinga eins og okkur af norðlægum slóðum hefur þetta verið nánast óbærilegt og stundum við vatnsdrykkju og ísát sem mest við getum enda hefur hitastigið verið frá 25 gráðum á nóttinni upp í 40 gráður á daginn.

Þegar hér var komið við sögu settist Maggi að í ísskápnum!
(Taka skal fram að þessi mynd er tekin í skugga...)

5 Ummæli:
Sælar
Gaman að fá að fylgjast með ykkur í danaveldi. Við fjölskyldan ákváðum einmitt í síðustu viku að vera í köben yfir 17. júní helgina og flýja kuldann og rignuna á Íslandi.
kv. Bríet
fimmtudagur, júní 15, 2006 11:35:00 f.h.
Öfund, öfund!!! ég veit að það getur stundum verið of heitt þarna í útlandinu en ég væri frekar til í að vera í sólinni í stað endalausri rigningu:) En vonandi fáið þið inn á milli þæginlega daga, s.s. ekki alveg að kafna úr hita:) Sjáumst svo fljótlega, skvís.. knús, knús.
fimmtudagur, júní 15, 2006 6:48:00 e.h.
Gott plan hjá ykkur Bríet, maður getur nú fengið alveg nóg af endalausri rigningu!
fimmtudagur, júní 15, 2006 9:30:00 e.h.
Hej hej
Hvernig er þetta þarna dk, er aldrei almennilegt veður fyrir ykkur skötuhjúin. Annað hvort er of kalt, heitt eða það rignir...ekkert svona mellow þarna??????
það bara rignir hér, endalaus súld og norðaustan garri eða hvað sem þetta heitir nú allt saman....
Fínt þegar maður þarf að sofa en helvíti skítt ef maður er í fríi!!
Svo verður eflaust massa veður hérna þegar maður er í útlandinu!
Anywho..nóg um veðrið...ætla að fara að lúlla eftir vaktina
Leiter geiter
Álfa næturdrottning....
föstudagur, júní 16, 2006 10:39:00 f.h.

Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim