Helstu atburðir júnímánaðar
Sophia og Einar komu til okkar 2. júní eftir að hafa verið búin að vera 2 nætur í Kaupmannahöfn. Við keyrðum með þeim til Ribe og Rømø og við þrjú fórum saman til Randers og skoðuðum þar regnskóg sem er búið að búa til þar með plöntum og dýrum frá Afríku, Asíu og S-Ameríku. Maggi var á fullu í skólanum að klára lokaverkefnið sitt þannig að hann komst ekki með. Einnig skoðuðum við Horsens og nágrenni bæjarins.
Sophia í Juelsminde
Verið að skoða dýrin í regnskóginum
Svo varð auðvitað að taka mynd af Sophiu hjá pósthúsinu í Ribe.
Daginn fyrir þjóðhátíðardaginn kom Sara Bergdís og gisti hjá okkur. Albert var að útskrifast sem margmiðlunarhönnuður og voru foreldrarnir því í Árósum að halda upp á áfangann – ekkert smá flott hjá stráknum!
Sara að horfa á sjónvarpið í "húsinu sínu" sem hún bjó til sjálf.
Daginn eftir kom önnur skotta í pössun til okkar en hún heitir Sophie og er Golden Retriver-tík (veit ekki hvort þetta sé rétt skrifað...). ”Foreldrar hennar” voru í veislu sem byrjaði um miðjan daginn og stóð fram eftir nóttu.
Þessa sömu nótt og Sophie var hjá okkur komu mamma og pabbi til okkar. Þau lentu seint um kvöldið í Köben og brunuðu svo beint hingað. Við fórum með þeim líka til Ribe og gengum þar um bæinn. Einnig skruppum við til Silkeborgar og gengum upp á Himmelbjerget. Svo má ekki gleyma því að við mamma fórum í velheppnaða verslunarferð til Árósa þar sem kreditkortin fengu gott tækifæri til að sanna gildi sitt!
Blómarósir í Ribe
Komin upp á Himmelbjerget eftir "fjallgönguna miklu"
Annars eru helstu fréttir þær að ég er byrjuð að vinna við heimilishjálp. Ég er búin að vera núna í því í 2 vikur og mér líkar þetta svona ágætlega. Þetta er mjög góð æfing fyrir mig að tala og skilja dönskuna því að flest af þessu fólki sem ég er að hjálpa er í eldri kantinum og það getur því verið erfitt að skilja þau. Ég er líka ennþá í sprog-skólanum og mun taka próf þar á miðvikudaginn og þá er honum lokið.
Á laugardaginn var haldinn sommer-fest í skólanum en þá var farið í Bygholm Park sem er mjög flottur garður hér og grillað saman auk þess sem spilað var badminton og blak en í því síðarnefnda var ég einmitt í sigurliðinu og sýndi snilldartakta þó ég segi sjálf frá...
Núna erum við bara að undirbúa okkur fyrir komu næstu gesta frá Íslandi en Ragna, Árni og Ágústa Birna koma til okkar í lok þessarar viku.
Af því tilefni ákvað ég að skella inn þessari fínu mynd af okkur vinkonunum frá 1985. Takið sérstaklega eftir Henson-gallanum og íshoppunum!










3 Ummæli:
OMFG þú ert ekkert að kiddast með þetta... algjör snillllllllld... mig langar í ís núna.. ;(
miðvikudagur, júní 28, 2006 12:37:00 e.h.
Það er aldeilis heimsóknirnar sem þið fáið.. og svo stoppar það ekkert.. hlakka þvílíkt til að sjá þig á föstudaginn.. En mikið ofboðslega lítur þú vel út á öllum þessum myndum, algjör skvísa. En við heyrumst og sjáumst MJÖG fljótlega:)
kv. Guðrún Brynja
þriðjudagur, júlí 04, 2006 1:48:00 e.h.
Takk elsku Guðrún, hlakka líka mikið til að sjá þig á föstudaginn!
þriðjudagur, júlí 04, 2006 8:57:00 e.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim