mánudagur, júní 26, 2006

Helstu atburðir júnímánaðar

Sophia og Einar komu til okkar 2. júní eftir að hafa verið búin að vera 2 nætur í Kaupmannahöfn. Við keyrðum með þeim til Ribe og Rømø og við þrjú fórum saman til Randers og skoðuðum þar regnskóg sem er búið að búa til þar með plöntum og dýrum frá Afríku, Asíu og S-Ameríku. Maggi var á fullu í skólanum að klára lokaverkefnið sitt þannig að hann komst ekki með. Einnig skoðuðum við Horsens og nágrenni bæjarins.

Sophia í Juelsminde
Verið að skoða dýrin í regnskóginum
Svo varð auðvitað að taka mynd af Sophiu hjá pósthúsinu í Ribe.

Daginn fyrir þjóðhátíðardaginn kom Sara Bergdís og gisti hjá okkur. Albert var að útskrifast sem margmiðlunarhönnuður og voru foreldrarnir því í Árósum að halda upp á áfangann – ekkert smá flott hjá stráknum!
Sara að horfa á sjónvarpið í "húsinu sínu" sem hún bjó til sjálf.
Daginn eftir kom önnur skotta í pössun til okkar en hún heitir Sophie og er Golden Retriver-tík (veit ekki hvort þetta sé rétt skrifað...). ”Foreldrar hennar” voru í veislu sem byrjaði um miðjan daginn og stóð fram eftir nóttu.


Þessa sömu nótt og Sophie var hjá okkur komu mamma og pabbi til okkar. Þau lentu seint um kvöldið í Köben og brunuðu svo beint hingað. Við fórum með þeim líka til Ribe og gengum þar um bæinn. Einnig skruppum við til Silkeborgar og gengum upp á Himmelbjerget. Svo má ekki gleyma því að við mamma fórum í velheppnaða verslunarferð til Árósa þar sem kreditkortin fengu gott tækifæri til að sanna gildi sitt!

Blómarósir í Ribe
Komin upp á Himmelbjerget eftir "fjallgönguna miklu"

Annars eru helstu fréttir þær að ég er byrjuð að vinna við heimilishjálp. Ég er búin að vera núna í því í 2 vikur og mér líkar þetta svona ágætlega. Þetta er mjög góð æfing fyrir mig að tala og skilja dönskuna því að flest af þessu fólki sem ég er að hjálpa er í eldri kantinum og það getur því verið erfitt að skilja þau. Ég er líka ennþá í sprog-skólanum og mun taka próf þar á miðvikudaginn og þá er honum lokið.
Á laugardaginn var haldinn sommer-fest í skólanum en þá var farið í Bygholm Park sem er mjög flottur garður hér og grillað saman auk þess sem spilað var badminton og blak en í því síðarnefnda var ég einmitt í sigurliðinu og sýndi snilldartakta þó ég segi sjálf frá...

Núna erum við bara að undirbúa okkur fyrir komu næstu gesta frá Íslandi en Ragna, Árni og Ágústa Birna koma til okkar í lok þessarar viku.

Af því tilefni ákvað ég að skella inn þessari fínu mynd af okkur vinkonunum frá 1985. Takið sérstaklega eftir Henson-gallanum og íshoppunum!

miðvikudagur, júní 14, 2006

Hitabylgja!

Síðastliðna daga hefur verið of heitt til að stunda tölvuna, handleggirnir límast við skrifborðið, fingurnir við lyklaborðið og svitapollur myndast við skrifborðsstólinn. Fyrir svona víkinga eins og okkur af norðlægum slóðum hefur þetta verið nánast óbærilegt og stundum við vatnsdrykkju og ísát sem mest við getum enda hefur hitastigið verið frá 25 gráðum á nóttinni upp í 40 gráður á daginn.




Þegar hér var komið við sögu settist Maggi að í ísskápnum!

(Taka skal fram að þessi mynd er tekin í skugga...)

föstudagur, júní 09, 2006

Twenty-something....

Þegar við fluttum frá Íslandi þá átti ég von á að maður mundi upplifa fullt af nýjum hlutum og það hefur alveg gengið eftir. Maður lærir nýtt tungumál (eða rifjar það upp síðan maður lærði það í skóla!), kynnist fullt af fólki alls staðar að úr heiminum og aðlagast nýju samfélagi sem er að mörgu leyti líkt því sem maður kom frá en að mörgu leyti líka mjög ólíkt. En aldrei átti ég von á því að það að flytja erlendis mundi yngja mig! Þegar ég tala við samnemendur mína í sprog-skólanum og minnist á eiginmann minn þá verður fólk oft gáttað á því að ég skuli vera búin að gifta mig svona ung! Hér halda flestir að ég sé 23 - 24 ára (sem er svo sem ekki slæmt í sjálfu sér :-). Þannig að ég mæli með þessu við sem flesta – flytja erlendis til að yngja sig upp. Kannski ég ætti að fara að huga að því að flytja eitthvert annað þegar ég verð fertug svo ég geti þá talist vera þrítug!