Þetta er ljúft líf...
Hér er heldur betur komið sumarveður, búið að vera sól og rúmlega 20 stiga hiti og er sama veðri spáð hér fram yfir helgi. Við erum búin að kaupa okkur bíl, glæsikerru af tegundinni Nissan Primera árgerð 1993 sem telst nú bara vera bíll á besta aldri hér í Danmörku. Við erum ekki ennþá búin að nefna hann formlega en þessa tvo daga sem við erum búin að eiga hann hefur hann gengið undir nafninu "danske lille rød" sem er skírskotun til Fiatsins hennar mömmu sem stundum er kallaður litli rauður. En allar tillögur eru vel þegnar!
Við héldum partý á laugardaginn til að fagna þrítugsafmælis húsbóndans og mættu um 20 manns. Hér var þrusustuð og m.a.s. farið í drykkjuleik sem fólk slapp misvel frá. Við reyndar misreiknuðum eitthvað áfengisþorsta gestanna, keyptum alltof mikið og sitjum núna uppi með slatta af bjórkössum en ég hef nú svo sem grun um að þeir muni ekkert skemmast hjá okkur.

Ég er búin að fá jákvætt svar frá háskólanum í Árósum og byrja þar í september þannig að planið hjá mér núna er að vera í dönskuskólanum út júní, fá vinnu hér í júlí (er að vinna í þeim málum) og kíkja svo til Íslands í ágúst áður en skólinn byrjar.
Svo er það síðastu fréttirnar en alls ekki þær sístu en það er að við erum komin með miða á MADONNU!! Þurfti bara að bíða í röð í 4 klukkutíma :-) Jíha!

3 Ummæli:
Vá, miðar á Madonnu, öfund, öfund!!! þú færð tónleikana bara næstum því í afmælisgjöf. Ekki slæm gjöf þar:) Og til hamingju aftur með að vera komin inn í skólann, brillant hjá þér skvís!! Hlakka til að sjá þig í ágúst, eða kannski fyrr, muhaaaa...:):):)
föstudagur, maí 05, 2006 1:42:00 f.h.
Já þú veist það elsku Guðrún að ég er alltaf á nálum hvenær þér muni dúkka upp hér í Horsens....hmmm... Ég hef grun um að mér eigi eftir að hefnast fyrir prakkarastrikið okkar í Stokkhólmi í fyrra ;-)
föstudagur, maí 05, 2006 11:11:00 f.h.
og ætlaru að bjóða mér á Madonnu TAKK ;)
föstudagur, maí 05, 2006 2:15:00 e.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim