fimmtudagur, maí 25, 2006

Blautt blautara blautast

Það má heldur betur segja að maímánuður hafi byrjað vel, algjör bongóblíða en það stóð nú bara yfir í rúma viku. Síðastliðnar 2 vikur er svo búið að vera monsún-tímabil hér á Jótlandi, endalaus rigning og leiðindaveður og það virðist nú ekkert ætla að fara að breytast. En maður verður víst að ylja sér við minninguna um þessa sólarviku og halda í vonina að góða veðrið muni láta sjá sig aftur.

Fyrstu helgina í maí skruppum við til Óðinsvéa (fyrsta ferðalag nýja bílsins) en þar vorum við boðin í matarboð hjá Albert og Siggu. Þar voru einnig Hjalti og Jóhanna og auðvitað skotturnar tvær, Leonóra og Sara Bergdís. Grillunin á kjötinu klikkaði “aðeins” en það skipti engu máli því að við fengum í staðinn dýrindis pylsur með gómsætu meðlæti, góðum drykkjarveigum og ekki spillti félagskapurinn fyrir – alveg stórskemmtilegt kvöld.

Albert grillmeistari að störfum.
Við hin höfðum það huggulegt á pallinum á meðan.
Við gistum síðan hjá Alberti og co og buðu þau okkur upp á íslenska súkkulaðisnúða í hádegismat. Eftir það kíktum við í heimsókn til Þorgerðar og Sævars þar sem við fengum kryddbrauð og súkkulaðisnúða! (Öðruvísi tegund að vísu.) Kl. 18 brunuðum við aftur til Horsens því við vorum boðin í kvöldmat til Rúnars og Fanneyjar og sátum við þar síðan og spjölluðum fram eftir kvöldi.
Eins og sjá má vöktu snúðarnir hjá Þorgerði mikla lukku hjá öllum - nema hjá Aroni Yngva sem fékk ekki að smakka og hallaði því bara undir flatt.
Maggi að setja saman grillið sem hann fékk í afmælisgjöf.
Síðan borðuðum við úti...
... enda ekki hægt annað þegar hitastigið á pallinum var 30 gráður! :-)

Ingi frændi hans Magga kom í heimsókn um síðustu helgi frá Thisted. Maggi kynnti honum aðeins hvernig skólalífið er í Vitus Bering með því að fara með hann á Skólabarinn og ég held að hann greyið Ingi hafi fengið menningarsjokk yfir hvað þetta skólalið gat drukkið mikið en samt er hann nú búinn að búa í Danmörku í 4 ár. Frændurnir fóru síðan á Kim Larsen tónleika á föstudaginn en hann var að spila á tónlistarhátíð hér í bænum með fullt af hljómsveitum – Open Air Horsens. Verst hvað það rigndi mikið allan tímann sem Ingi var hjá okkur.

Við skötuhjúin erum búin að vera á 5 vikna golfnámskeiði og í gærkvöldi átti að vera síðasti tíminn þar sem átti að taka stuttan hring um golfvöllinn. En því var frestað vegna þess að kennarinn þurfti að mæta í partý þannig að það er ekki alveg komið á hreint hvenær við munum “útskrifast” af námskeiðinu.

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hahahahahahha gerið þið ekkert annað en að vera í matarboðum ?

bíddu bara sko þegar að þér bragðið á súfflí sjúkkulade kökunni minni.. múhahahaahahah then you have fallen for the devil!!

En það er svakalega gaman að sjá að þú ert að taka við þér í blogginu.. You Go GirL

laugardagur, maí 27, 2006 6:23:00 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það þýðir víst ekkert annað en að standa sig!

sunnudagur, maí 28, 2006 11:46:00 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það hlýtur að vera mikil drykkja þarna fyrst að Ingi er hissa.

þriðjudagur, júní 06, 2006 4:41:00 f.h.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim