fimmtudagur, apríl 20, 2006

Gleðilegt sumar!

Jæja, það er komið langt síðan ég skrifaði síðast og sumir farnir að ýta á eftir því! Það er búið að vera margt í gangi hjá okkur síðustu vikurnar. Á föstudaginn fyrir viku síðan var haldinn alþjóðlegur dagur í dönsku-skólanum. Kennslustofurnar voru skreyttar með þjóðfánum allra nemendanna, boðið var upp á margs konar skemmtiatriði og svo var hægt að gæða sér á mjög fjölbreytilegum mat – bæði góðum og vondum. Ég bauð nú bara upp á kúlusúkk en aðrir lögðu meiri vinnu á sig eins og sjá má á myndinni.


Hér má sjá nokkrar fleiri myndir frá deginum

Ég og Sarah frá Bandaríkjunum

Ég og Ivana frá Serbíu

Daginn eftir kíktu síðan Albert, Sigga og Sara Bergdís í kaffi til okkar og á sunnudeginum komu Hjalti, Jóhanna og Leonóra í kvöldmat.

Leonóra var mjög fjörug eftir matinn og tók okkur Magga í smá danskennslu.



Á þriðjudaginn í síðustu viku héldum við síðan til Stokkhólms og vorum komin þangað um tíuleytið um kvöldið eftir 8 tíma lestarferð og smá stoppi í Kaupmannahöfn. Við dvöldumst hjá Alfreð og Björk í góðu yfirlæti í 6 daga. Á miðvikudeginum komu Lillemor og Janne og borðuðu hangikjöt með okkur sem ég held að þau hafi verið mjög hrifin af. Á fimmtudeginum hittum við Gulla og Söndru og skelltum okkur með þeim á rokka-billy kaffihús þar sem allt var í 50´s stíl.

Föstudagurinn fór í gönguferðir um Södermalm, Gamla Stan og Vasastan sem allt var mjög skemmtilegt að skoða.

Við mágkonurnar í göngutúr


Hér má sjá glitta í okkur Magga að ganga
Á laugardaginn skelltum við okkur í bátsferð út í Sandö sem er eyja í skerjagarðinum en þar er mjög sætur lítill bær sem kallast Sandhamn. Við fengum alveg frábært veður með glampandi sól og röltum við um eyjuna og flatmöguðum í sólina (þar sem freknurnar fengu smá þjófstart fyrir sumarið) auk þess að borða góðan mat.

Björk í Sandhamn




Rákumst á þessa “veglegu” styttu í Sandhamn


Á leiðinni tilbaka eftir skemmtilegan dag.
Á páskadag komu Gulli og Sandra og borðuðu með okkur en þá buðu Björk og Alfreð upp á lambalæri sem hafði verið smyglað til þeirra frá Íslandi auk orabauna og svo var súkkulaðikaka (a la Sandra) með rjóma og páskaegg í eftirrétt – allt alveg hrikalega gott.


Efti matinn tók Gulli nokkra góða gítartakta.

Kvöldinu lauk síðan með smá bumbu-samanburði.
Við héldum tilbaka á mánudagsmorgninum og þar var tekið 3 klst. stopp í Köben og fórum við þá út að borða með Valla….. nei ég meina Davíð.

3 Ummæli:

Blogger Mjallhvit sagði...

Váá róleg á því ;)

föstudagur, apríl 21, 2006 2:35:00 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Vá, það er aldeilis búið að vera mikið að gera hjá ykkur síðastliðnar vikur... en bara gaman af því. Ótrúlega skemmtilegt að skoða myndirnar:) Langaði bara að kasta smá kveðju á þig, Stína mín og ég heyri svo vonandi í þér bráðum:) knús knús... Úh-úh-kveðjur frá Helga.

laugardagur, apríl 22, 2006 9:28:00 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Sæl Stína, þú verður örugglega hissa að fá línu frá mér en mig langaði bara að segja hvað það er gaman að lesa bloggið þitt og frábærar myndir! Það verður spennandi að fylgjast með ævintýrum ykkar Magga í Danmörku. Kær kveðja frá Þórey (nistu) haha ;)

sunnudagur, apríl 23, 2006 6:44:00 f.h.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim