Confessions Tour
Vá, ég var að sjá það á netinu að Madonna verður með tónleika í hér í Horsens 24. ágúst! Það verður nú örugglega algjört brjálæði að fá miða á þá en ég ætla samt að reyna, það væri frábær afmælisgjöf að fá að sjá Madonnu á sviði live :-)
Við fórum í partý á laugardaginn til Soffíu og Nonna sem búa hérna rétt hjá okkur á Stensballe, þar voru samankomnir margir Íslendingar og var mikið talað og mikið hlegið. Svo var skundað á Íslendingaball á Skólabarnum en litla ég var nú orðin þreytt þá og rölti bara heim. Eiginmaðurinn skellti sér á ballið með hinum og var ekki komin heim fyrr en kl. 3:30 - það gekk víst eitthvað erfiðlega að fá taxa heim.
Það styttist í páskafríið hjá okkur, það eru bara eftir 3 skóladagar hjá mér því að á föstudaginn er alþjóðlegur dagur í skólanum með tilheyrandi húllum-hæi og þá er enginn kennsla. Síðan fer ég í próf á mánudaginn og við förum til Stokkhólms á þriðjudaginn.

6 Ummæli:
Ég myndi glöð gefa úr mér annað nýrað fyrir miða á Madonnu en ég verð í Króa á þessum tíma...en ég hélt reyndar fyrst að þetta væri aprílgabb hjá þér...eða síðbúið aprílgabb kanski... :)
Ertu búin að fá sendinguna heilu og höldnu?
Kv. Álfheiður
fimmtudagur, apríl 06, 2006 7:08:00 e.h.
Ég mundi nú aldrei grínast með Madonnu!
Nei sendingin er ekki komin, það verður því lítið sem ég get boðið upp á í skólanum á morgun :-(
fimmtudagur, apríl 06, 2006 9:57:00 e.h.
Æi ertu ekki að grínast... :(
...Ég hefði átt að senda þetta í DHL...glatað!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Sorrí skvís
Þú verður þá bara að taka slátur eða sviða nokkra kjamma!
Knús Á
föstudagur, apríl 07, 2006 7:56:00 f.h.
Hafðu ekki áhyggjur, ég átti smá kúlusúkk ofan í skúff - ég ætlaði bara að geyma það fyrir mig :-) og það vakti mikla lukku!
föstudagur, apríl 07, 2006 3:53:00 e.h.
Ég hefði nú ekkert á móti því að fá miða uppá Madonnu...hahahahahahahaahahahahaha hahahahahahaahah ahahahahhahaha. ..ég er svo fyndinn .hahahahaha ahahah aha ha a h....hmmm
fimmtudagur, apríl 13, 2006 6:51:00 e.h.
sko ef að þú ferð á madonnu þá verðuru að stökkva uppá svið þegar að hún tekur Like a virgin og taka þinn fræga dans ;) Síðan ætla ég láta þig vita aðþú verður að vera í dk í Júlí... það ku vera lögboðin skylda og vísa ég hér með í lög Maríu Djöfuls ;)
miðvikudagur, apríl 19, 2006 12:24:00 e.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim