sunnudagur, apríl 23, 2006

Pappírsbrúðkaup


Það má segja að tíminn líði hratt en í dag er 1 ár liðið síðan Maggi skuldbatt sig löglega til að taka við mér og ég varð frú Stína. Við ætlum að fara út að borða í kvöld til að halda upp á tilefnið en annars er nú ekki mikið á dagskrá hjá okkur í dag annað en að njóta dagsins.

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Gleðilegt sumar!

Jæja, það er komið langt síðan ég skrifaði síðast og sumir farnir að ýta á eftir því! Það er búið að vera margt í gangi hjá okkur síðustu vikurnar. Á föstudaginn fyrir viku síðan var haldinn alþjóðlegur dagur í dönsku-skólanum. Kennslustofurnar voru skreyttar með þjóðfánum allra nemendanna, boðið var upp á margs konar skemmtiatriði og svo var hægt að gæða sér á mjög fjölbreytilegum mat – bæði góðum og vondum. Ég bauð nú bara upp á kúlusúkk en aðrir lögðu meiri vinnu á sig eins og sjá má á myndinni.


Hér má sjá nokkrar fleiri myndir frá deginum

Ég og Sarah frá Bandaríkjunum

Ég og Ivana frá Serbíu

Daginn eftir kíktu síðan Albert, Sigga og Sara Bergdís í kaffi til okkar og á sunnudeginum komu Hjalti, Jóhanna og Leonóra í kvöldmat.

Leonóra var mjög fjörug eftir matinn og tók okkur Magga í smá danskennslu.



Á þriðjudaginn í síðustu viku héldum við síðan til Stokkhólms og vorum komin þangað um tíuleytið um kvöldið eftir 8 tíma lestarferð og smá stoppi í Kaupmannahöfn. Við dvöldumst hjá Alfreð og Björk í góðu yfirlæti í 6 daga. Á miðvikudeginum komu Lillemor og Janne og borðuðu hangikjöt með okkur sem ég held að þau hafi verið mjög hrifin af. Á fimmtudeginum hittum við Gulla og Söndru og skelltum okkur með þeim á rokka-billy kaffihús þar sem allt var í 50´s stíl.

Föstudagurinn fór í gönguferðir um Södermalm, Gamla Stan og Vasastan sem allt var mjög skemmtilegt að skoða.

Við mágkonurnar í göngutúr


Hér má sjá glitta í okkur Magga að ganga
Á laugardaginn skelltum við okkur í bátsferð út í Sandö sem er eyja í skerjagarðinum en þar er mjög sætur lítill bær sem kallast Sandhamn. Við fengum alveg frábært veður með glampandi sól og röltum við um eyjuna og flatmöguðum í sólina (þar sem freknurnar fengu smá þjófstart fyrir sumarið) auk þess að borða góðan mat.

Björk í Sandhamn




Rákumst á þessa “veglegu” styttu í Sandhamn


Á leiðinni tilbaka eftir skemmtilegan dag.
Á páskadag komu Gulli og Sandra og borðuðu með okkur en þá buðu Björk og Alfreð upp á lambalæri sem hafði verið smyglað til þeirra frá Íslandi auk orabauna og svo var súkkulaðikaka (a la Sandra) með rjóma og páskaegg í eftirrétt – allt alveg hrikalega gott.


Efti matinn tók Gulli nokkra góða gítartakta.

Kvöldinu lauk síðan með smá bumbu-samanburði.
Við héldum tilbaka á mánudagsmorgninum og þar var tekið 3 klst. stopp í Köben og fórum við þá út að borða með Valla….. nei ég meina Davíð.

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Confessions Tour

Vá, ég var að sjá það á netinu að Madonna verður með tónleika í hér í Horsens 24. ágúst! Það verður nú örugglega algjört brjálæði að fá miða á þá en ég ætla samt að reyna, það væri frábær afmælisgjöf að fá að sjá Madonnu á sviði live :-)
Við fórum í partý á laugardaginn til Soffíu og Nonna sem búa hérna rétt hjá okkur á Stensballe, þar voru samankomnir margir Íslendingar og var mikið talað og mikið hlegið. Svo var skundað á Íslendingaball á Skólabarnum en litla ég var nú orðin þreytt þá og rölti bara heim. Eiginmaðurinn skellti sér á ballið með hinum og var ekki komin heim fyrr en kl. 3:30 - það gekk víst eitthvað erfiðlega að fá taxa heim.
Það styttist í páskafríið hjá okkur, það eru bara eftir 3 skóladagar hjá mér því að á föstudaginn er alþjóðlegur dagur í skólanum með tilheyrandi húllum-hæi og þá er enginn kennsla. Síðan fer ég í próf á mánudaginn og við förum til Stokkhólms á þriðjudaginn.

sunnudagur, apríl 02, 2006

Farin.... og komin tilbaka



Ég skrapp í heimsókn til Íslands um daginn til að fara í jarðarför. Þetta var stutt stopp, einungis 6 dagar en þrátt fyrir stuttan tíma þá náði ég að gera ýmislegt eins og t.d.
* Fara þrisvar út að borða.
* Fara tvisvar í matarboð.
* Mæta í þrítugsafmæli hjá gömlum æskuvini úr Ásbúðinni (sem boðflenna).
* Kíkja í Smáralindina með Rögnu og Ágústu Birnu
* Heilsa upp á ömmu og Jóhönnu tengdaömmu.
* Fara í nokkrar heimsóknir.
* Skoða nýja húsið sem Freyr og Eliisa voru að kaupa í Kópavogi.
* Fara í klippingu.
* Kíkja í heimsókn til sýsla.
* Og auðvitað að njóta alls þess góða sem Hótel Mamma hefur upp á að bjóða.
Því miður náði ég ekki að hitta alla sem ég hefði viljað en úr því verður vonandi bætt þegar við kíkjum til Íslands í ágúst.

Heimferðin frá Íslandi gekk ágætlega fyrir utan að þegar ég kom í Leifsstöð þá mætti mér sú allra lengsta tjékk-inn-röð sem ég hef séð og fór því dágóður tími í bið en það var dýrmætur tími sem ég ætlaði að nýta í fríhöfnina. Þannig að ég rétt náði að kíkja þar og fara í Kaffitár til að taka með rúnstykki og trópí því ég var orðin glorhungruð. Síðan þegar ég er að taka stefnuna út í vél þá fer ég að spá í hvað ég hafi gert við brottafararspjaldið og vegabréfið og gat hvergi fundið það. Hljóp því aftur í Kaffitár og viti menn, í öllu stressinu hjá mér hafði ég gleymt því þar. En svo þegar ég var komin út flugvél þá varð nú 25 mínútna seinkun því það var verið að bíða eftir farþegum úr tengiflugi þannig að ég hefði nú ekki þurft að drífa mig svona mikið! En fyrir utan það þá gekk ferðin vel og Danmörk tók “fagnandi” á móti mér með rigningu þrátt fyrir að ég hefði lagt það sérstaklega á mig að fá mér rauðar strípur til heiðurs danska fánanum.