Stutt fréttaskot
Hér er sólin aðeins farin að láta sjá sig, um síðustu helgi var 8-9 stiga hiti. Af því tilefni skelltum við okkur í smá garðvinnu á sunnudaginn, hreinsuðum þakrennurnar á bílskýlinu og rökuðum eitthvað af laufunum í garðinum, Reyndar er litla "tjörnin" okkar ennþá frosin þannig að við þurfum að bíða smá eftir að láta gosbrunninn í gang.
Við fórum í hjólatúr á laugardaginn, ég vildi endilega sýna Magga göngustíginn sem ég hafði fundið um daginn sem er meðfram sjónum upp í hverfið okkar - Stensballe. Hér má sjá nokkrar myndir frá þeirri ferð.




1 Ummæli:
Sko það eru sko útivistarmöguleikar í Danmörku! Bara aðeins minna um fjöll og meira um tré.
ps ég mundi halda mig frá tjörnum með mikið af öndum ;)
miðvikudagur, mars 22, 2006 10:46:00 f.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim