fimmtudagur, mars 02, 2006

Snjór, snjór, snjór.....

Margir hérna í Danmörku voru búnir að segja við mig að vorið byrjaði hér í mars og þá ætti að fara að hlýna þannig að ég er búin að bíða spennt eftir marsmánuði þegar ég gæti hent kuldaskónum og húfunni inn í geymslu og tekið fram sandalana og sólhattinn. En nei, bæði í gær og í dag er búið að snjóa og skv. veðurspá á að vera snjór fram yfir helgi. Bikiníið verður því víst að bíða betri tíma.....

Alfreð var hjá okkur um síðustu helgi og höfðum við það mjög náðugt. Þeir Maggi fóru saman í göngutúr um bæinn á föstudaginn meðan ég var í skólanum og svo fórum við út að borða á Oksen um kvöldið og borðuðum þar dýrindis steik. Á laugardeginum byrjuðum við á því að fara aftur í bæinn og fengum okkur "brunch". Síðan var rölt meira um bæinn og kíkt í Bilka (að sjálfsögðu!!) áður en haldið var aftur heim á leið. Um kvöldið eldaði ég fyrir okkur gráðosta-kjúkling og síðan horfðum við á American Idol og drukkum bjór. Alfreð tók svo lestina heim um hádegi á sunnudeginum. En við munum nú hittast fljótt aftur því við Maggi erum búin að panta ferð til Stokkhólms um páskana og verðum þá hjá Alfreð og Björk í 6 daga.

Við systkinin að bíða eftir strætó



Eins og kannski margir vita þá horfum við Maggi frekar mikið á sjónvarp og höfum gaman af. Sumir (t.d. foreldrar mínir) mundu jafnvel ganga svo langt að segja að við séum sjónvarpssjúklingar en það er náttúrulega bara þeirra skoðun! Þið getið því ímyndað ykkur hvað við fengum mikið áfall þegar sjónvarpið okkar var næstum því búið að enda lífdaga sína á sunnudaginn. Við fengum í heimsókn til okkar Þorgerði, Sævar og strákana þeirra Bjarna Leó og Aron Yngva. Bjarni Leó hefur mjög gaman af því að príla upp á hluti og hann sá að sjónvarpið væri eitthvað sem tilvalið væri að komast upp á. Hann dró því út skúffuna sem er fyrir videóspólur og klifraði upp á en þá fór vogaraflið að virka og allt fór að falla fram. En Sævar sýndi ótrúleg tilþrif og náði að grípa tækið og minnka þannig fallið. Bjarni Leó meiddi sig sem betur fer ekki en sjónvarpið fór aðeins í sundur og það kom smá dæld í parketið. Allir fengu nett áfall og í huga mér flugu fram minningar af þeim gleðistundum sem við hjónin höfum átt fyrir framan sjónvarpið síðastliðin 5 ár. En sjónvarpið virkar allavega og vonandi verður hægt að laga það sem fór í sundur.

Hér má sjá litla sjónvarpsskelfirinn......

.... og Aron Yngvi litli bróðir alltaf jafnhissa :-)

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Skólafólk hefur ekkert að gera við sjónvarp. Þið eigið að nýta tímann í að læra. Ef þið hafið tíma aflögu eigið þið að vera úti í góða veðrinu :-)

föstudagur, mars 03, 2006 4:52:00 f.h.

 
Blogger Mjallhvit sagði...

hahahahaha mér finnst samt að þú eigir að skella þér út í bikiní :)

föstudagur, mars 03, 2006 9:22:00 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Frábært að sjá að þú sért byrjuð að blogga, þá get ég nú aðeins fylgst betur með þér:) En ég vona nú að sjónvarpið verði í lagi, ég heimta nú eitt videokvöld eða svo þegar ég kem í heimsókn, hvenær sem það verður, hmmm....:)En ég bið bara að heilsa Magga og Helgi sendir sínar Ú Ú Ú kveðjur eins og alltaf;) Ég sendi þér svo mail fljótlega.. knús knús

þriðjudagur, mars 07, 2006 5:05:00 e.h.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim