sunnudagur, mars 12, 2006

Brrrrr.....það er kalt.....

Svo að ég röfli nú aðeins meira um veðrið hérna þá er búið að vera skítakuldi hjá okkur í nokkra daga, 2-3 stiga frost og rok. Um daginn þegar ég var að hjóla heim úr skólanum meðfram sjónum þá leið mér eins og ég væri á Íslandi - alveg að frjósa! Svo var sérstaklega gaman að fá tölvupóst frá mömmu þar sem hún sagði að það væri búið að vera blíðskaparveður á Íslandi í marga daga. En sem sagt núna er búið að seinka vorinu hérna þangað til í apríl – ég allavega rétt svo vona að það komi þá!!

Ég er komin í nokkurs konar stúdentaráð í sprog-skólanum og við erum núna að undirbúa International dag sem verður haldinn í skólanum í byrjun apríl en þá eiga allir að koma með þjóðlega rétti og sýna myndir frá sínu heimalandi. Það verður vonandi gaman.

Um síðustu helgi fórum við í partý á Onsdags-barnum – já Guðrún Brynja, hann er greinilega til í fleiri löndum!! Það var tvöfalt tilefni fyrir partýinu en skólafélagi Magga, Böddi var 35 ára og Rakel, konan hans var að útskrifast úr snyrtifræði. Það var mikið fjör þarna og mikið af bjór enda ekki við af öðru að búast þegar Íslendingar koma saman í útlöndum. Eins og sjá má var ég stillt og settleg í partýinu eins og mín er von og vísa en Maggi lék lausum hala á dansgólfinu.






Í gær leigðum við okkur bíl og skruppum til Árósa þar sem fjárfest var í hillu í Ikea og pantaður svefnsófi í Ilvu. Okkur var sagt að sófinn yrði sendur til okkar eftir 2 vikur en ætli megi ekki reikna frekar með 3-4 vikum, miðað við hvernig hraðinn er á mörgu hér í Danmörku. Við vorum einnig næstum því búin að kaupa garðhúsgögn í Jysk en þau voru ekki til á lager og miðað við hvernig veðrið er núna þá liggur nú ekkert á að fjárfesta í svoleiðis!

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Já, Onsdags-barinn klikkar aldrei;) En gott hjá þér að koma þér í þessa nefnd í skólanum, þú ert allavega með góða æfingu í að plana og skipuleggja enda búin að halda mörg matarboðin og partýin í gegnum tíðina þannig að þú ættir nú ekki að vera í vandræðum með þetta:) Ég vona svo ykkar vegna að veðrið fari nú eitthvað að breytast hjá ykkur, hljómar nú ekki það skemmtilegasta að hjóla um í snjónum!! Knús knús..

miðvikudagur, mars 15, 2006 9:43:00 f.h.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim