miðvikudagur, mars 22, 2006

Stutt fréttaskot

Hér er sólin aðeins farin að láta sjá sig, um síðustu helgi var 8-9 stiga hiti. Af því tilefni skelltum við okkur í smá garðvinnu á sunnudaginn, hreinsuðum þakrennurnar á bílskýlinu og rökuðum eitthvað af laufunum í garðinum, Reyndar er litla "tjörnin" okkar ennþá frosin þannig að við þurfum að bíða smá eftir að láta gosbrunninn í gang.
Við fórum í hjólatúr á laugardaginn, ég vildi endilega sýna Magga göngustíginn sem ég hafði fundið um daginn sem er meðfram sjónum upp í hverfið okkar - Stensballe. Hér má sjá nokkrar myndir frá þeirri ferð.

sunnudagur, mars 12, 2006

Brrrrr.....það er kalt.....

Svo að ég röfli nú aðeins meira um veðrið hérna þá er búið að vera skítakuldi hjá okkur í nokkra daga, 2-3 stiga frost og rok. Um daginn þegar ég var að hjóla heim úr skólanum meðfram sjónum þá leið mér eins og ég væri á Íslandi - alveg að frjósa! Svo var sérstaklega gaman að fá tölvupóst frá mömmu þar sem hún sagði að það væri búið að vera blíðskaparveður á Íslandi í marga daga. En sem sagt núna er búið að seinka vorinu hérna þangað til í apríl – ég allavega rétt svo vona að það komi þá!!

Ég er komin í nokkurs konar stúdentaráð í sprog-skólanum og við erum núna að undirbúa International dag sem verður haldinn í skólanum í byrjun apríl en þá eiga allir að koma með þjóðlega rétti og sýna myndir frá sínu heimalandi. Það verður vonandi gaman.

Um síðustu helgi fórum við í partý á Onsdags-barnum – já Guðrún Brynja, hann er greinilega til í fleiri löndum!! Það var tvöfalt tilefni fyrir partýinu en skólafélagi Magga, Böddi var 35 ára og Rakel, konan hans var að útskrifast úr snyrtifræði. Það var mikið fjör þarna og mikið af bjór enda ekki við af öðru að búast þegar Íslendingar koma saman í útlöndum. Eins og sjá má var ég stillt og settleg í partýinu eins og mín er von og vísa en Maggi lék lausum hala á dansgólfinu.






Í gær leigðum við okkur bíl og skruppum til Árósa þar sem fjárfest var í hillu í Ikea og pantaður svefnsófi í Ilvu. Okkur var sagt að sófinn yrði sendur til okkar eftir 2 vikur en ætli megi ekki reikna frekar með 3-4 vikum, miðað við hvernig hraðinn er á mörgu hér í Danmörku. Við vorum einnig næstum því búin að kaupa garðhúsgögn í Jysk en þau voru ekki til á lager og miðað við hvernig veðrið er núna þá liggur nú ekkert á að fjárfesta í svoleiðis!

fimmtudagur, mars 02, 2006

Snjór, snjór, snjór.....

Margir hérna í Danmörku voru búnir að segja við mig að vorið byrjaði hér í mars og þá ætti að fara að hlýna þannig að ég er búin að bíða spennt eftir marsmánuði þegar ég gæti hent kuldaskónum og húfunni inn í geymslu og tekið fram sandalana og sólhattinn. En nei, bæði í gær og í dag er búið að snjóa og skv. veðurspá á að vera snjór fram yfir helgi. Bikiníið verður því víst að bíða betri tíma.....

Alfreð var hjá okkur um síðustu helgi og höfðum við það mjög náðugt. Þeir Maggi fóru saman í göngutúr um bæinn á föstudaginn meðan ég var í skólanum og svo fórum við út að borða á Oksen um kvöldið og borðuðum þar dýrindis steik. Á laugardeginum byrjuðum við á því að fara aftur í bæinn og fengum okkur "brunch". Síðan var rölt meira um bæinn og kíkt í Bilka (að sjálfsögðu!!) áður en haldið var aftur heim á leið. Um kvöldið eldaði ég fyrir okkur gráðosta-kjúkling og síðan horfðum við á American Idol og drukkum bjór. Alfreð tók svo lestina heim um hádegi á sunnudeginum. En við munum nú hittast fljótt aftur því við Maggi erum búin að panta ferð til Stokkhólms um páskana og verðum þá hjá Alfreð og Björk í 6 daga.

Við systkinin að bíða eftir strætó



Eins og kannski margir vita þá horfum við Maggi frekar mikið á sjónvarp og höfum gaman af. Sumir (t.d. foreldrar mínir) mundu jafnvel ganga svo langt að segja að við séum sjónvarpssjúklingar en það er náttúrulega bara þeirra skoðun! Þið getið því ímyndað ykkur hvað við fengum mikið áfall þegar sjónvarpið okkar var næstum því búið að enda lífdaga sína á sunnudaginn. Við fengum í heimsókn til okkar Þorgerði, Sævar og strákana þeirra Bjarna Leó og Aron Yngva. Bjarni Leó hefur mjög gaman af því að príla upp á hluti og hann sá að sjónvarpið væri eitthvað sem tilvalið væri að komast upp á. Hann dró því út skúffuna sem er fyrir videóspólur og klifraði upp á en þá fór vogaraflið að virka og allt fór að falla fram. En Sævar sýndi ótrúleg tilþrif og náði að grípa tækið og minnka þannig fallið. Bjarni Leó meiddi sig sem betur fer ekki en sjónvarpið fór aðeins í sundur og það kom smá dæld í parketið. Allir fengu nett áfall og í huga mér flugu fram minningar af þeim gleðistundum sem við hjónin höfum átt fyrir framan sjónvarpið síðastliðin 5 ár. En sjónvarpið virkar allavega og vonandi verður hægt að laga það sem fór í sundur.

Hér má sjá litla sjónvarpsskelfirinn......

.... og Aron Yngvi litli bróðir alltaf jafnhissa :-)