Gestagangur

Við fengum góða gesti til okkar um helgina, Albert, Sigga og Sara Bergdís komu í heimsókn frá Óðinsvéum á sunnudaginn og borðuðu með okkur kvöldmat. Það var gaman að hitta þau og góð tilbreyting frá því að borða bara alltaf tvö ein.
Sara var sannkölluð hjálparhella, sniglaðist í kringum okkur við eldamennskuna og vildi endilega hjálpa okkur við að setja í þvottavélina, þá aðallega bangsann sinn sem hefur örugglega ekki fundist það vera góð hugmynd! Svo eftir matinn þá tók hún að sér að endurraða videóspólunum í hillunum hjá okkur, það er ekki slæmt að fá aðstoð frá svona dugnaðarforki í heimilisstörfin.
Nú styttist í Alfreð komi í heimsókn til okkar frá Stokkhólmi. Hann kemur á fimmtudagskvöldið og fer aftur á sunnudag. Það verður gaman að sýna honum húsið okkar og fara með honum rúnt um bæinn - þó að hann haldi því fram að það taki bara korter að skoða bæinn!

3 Ummæli:
Sæl
Gaman að sjá að þú sért farinn að blogga. Hef reyndar aldrei heyrt talað um þig sem Stínu Siggu en hey ;)
takk fyrir okkur um daginn þetta var frekar vel heppnað kvöld af okkar mati!
Síðan er nún kominn inn í bookmarks hjá mér og ég kem örugglega til með að kíkja reglulega á þig;)
Hilsen frá Odense
Albert K.
miðvikudagur, febrúar 22, 2006 8:35:00 f.h.
Mjög gaman að þú sért farin að vera með fréttaþjónustu á veraldarvefnum. Við fylgjumst spennt með :-)
Gangi ykkur allt í haginn.
Kveðja
Mína, Eyvindur & Guðbjörg
föstudagur, febrúar 24, 2006 4:41:00 e.h.
Bloggaðu nú Búkolla mín!!!
Hvað segiði gott? Héðan úr Vesturbænum er allt gott að frétta. Ég og Karólína fórum í Body Combat áðan en það var enginn Máni... :( einver skvísa að norðan greinilega, ekki deginum eldri en 21 og hún kunni ekki alveg sporin og var soldið stressuð greyið..ef þú lest þetta skvísa að norðan...hang in there girl! Og svo virkaði ekki mækið og hún sneri fram, sem ruglaði mig alveg! Ég vissi ekki að það væri hægt að sakna leikfimiskennarans síns...
Annars allt bara spakt, er með krónsík skólaverkefni sem hanga yfir mér, er líka á fullu að plana árshátið í vinnunni. Erum að taka upp vídeó og er búin að fá Jón frænda til að vera með meira að segja, þetta verður flott! Er að fara að halda saumaklúbb annað kvöld og verð á fullu í mínu stóra eldhúsi á morgun að framreiða glæsirétti...eða vonandi eitthvað í áttina
Bið að heilsa í bili og Teddy says hi!!! Hvað annað, hann hefur nú ekki sagt mikið meira í gegnum öll þessu ár..er að hugsa um að fá talþjálfun fyrir greyið...
Knús og kossar
Álfa
mánudagur, febrúar 27, 2006 10:50:00 e.h.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim