þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Gestagangur



Við fengum góða gesti til okkar um helgina, Albert, Sigga og Sara Bergdís komu í heimsókn frá Óðinsvéum á sunnudaginn og borðuðu með okkur kvöldmat. Það var gaman að hitta þau og góð tilbreyting frá því að borða bara alltaf tvö ein.
Sara var sannkölluð hjálparhella, sniglaðist í kringum okkur við eldamennskuna og vildi endilega hjálpa okkur við að setja í þvottavélina, þá aðallega bangsann sinn sem hefur örugglega ekki fundist það vera góð hugmynd! Svo eftir matinn þá tók hún að sér að endurraða videóspólunum í hillunum hjá okkur, það er ekki slæmt að fá aðstoð frá svona dugnaðarforki í heimilisstörfin.

Nú styttist í Alfreð komi í heimsókn til okkar frá Stokkhólmi. Hann kemur á fimmtudagskvöldið og fer aftur á sunnudag. Það verður gaman að sýna honum húsið okkar og fara með honum rúnt um bæinn - þó að hann haldi því fram að það taki bara korter að skoða bæinn!

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Heil og sæl veri fólkið!


Lífið hér á Jótlandi gengur sinn vanagang. Fyrstu vikurnar eftir að við komum hingað fóru að mestu í að koma okkur fyrir og að redda öllu sem þarf að gera þegar maður er nýbúi í Danmörku. Það fyrsta sem við rákum okkur á var að hér tekur allt mun lengri tíma heldur en á Íslandi, t.d. þurftum við að bíða í 2 vikur eftir að fá internet-tengingu heim. Einnig var okkur sagt að það mundi taka 2 vikur að fá danska kennitölu en það tók nú bara nokkra daga. Það gæti að einhverju leyti tengst því að ég gekk ansi hart eftir því að fá þetta sem fyrst - hringdi nokkrum sinnum og mætti svo bara aftur á svæðið......en það hafðist allavega fyrir rest. Annað dæmi sem má nefna um hvað Danirnir eru "ligeglad" eru ruslamálin hjá okkur. Þegar við tókum við húsinu okkar þá var fyrri eigandi svo elskulegur að skilja ruslatunnuna okkar eftir fulla og biðum við því í 2 vikur eftir að sjá ruslakallana koma. Þegar ekkert bólaði á þeim þá fórum við í kommúnuna og spurðumst fyrir um málið. Þar var okkur sagt að það hefði verið svo slæmt veður daginn sem átti að taka ruslið okkar þannig að það yrði ekki komið fyrr en eftir aðrar 2 vikur að taka það sem þýddi að ruslið safnaðist fyrir hjá okkur í 1 MÁNUÐ!! Auk þess veltum við því fyrir okkur hvenær þetta slæma veður hefði verið því það fór alveg framhjá okkur.........

Maggi er byrjaður á fullu í skólanum en ég er núna í vikufríi úr dönskunáminu. Ég ætlaði mér í þessari viku að skrifa svokallað "inspiration letter" sem á að fylgja umsókninni minni til háskólans í Árósum en það gengur mjög hægt. Andinn virðist ekki koma yfir mig og það er kannski ástæðan fyrir því að ég fór að gera þetta blogg. Ég þori ekki að lofa hve dugleg ég verð að skrifa hérna inn en ég skal gera mitt besta.