sunnudagur, maí 27, 2007
fimmtudagur, maí 24, 2007
Kominn tími til!
Ætli það sé ekki komin tími á smá bull enda margt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast og sumir farnir að saka mann um bloggleti. Ég fór til Köben í byrjun apríl og hitti þar mömmu auk þess sem að pabbi var með okkur í bláendanum af ferðinni. Maggi kláraði síðan prófið sitt um miðjan apríl og byrjaði í praktík í Árósum þannig að núna brunum við hjónin saman þangað á hverjum degi sem þýðir að ég er búin að missa einokunarvaldið sem ég hafði yfir útvarpinu í bílnum!
Ingi skáfrændi kom til okkar í helgarheimsókn í byrjun maí og fóru frændurnir saman í innkaupaleiðangur niður í bæ þar sem elsku bíllinn okkar tók upp á því að bila á miðjum gatnamótum. En þeir nenntu nú ekki að stressa sig mikið yfir því heldur hringdu bara á Falck og skelltu sér svo á barinn.
Í skálinni á borðinu er að finna það nýjasta sem Maggi hefur fangað í garðinum okkar en það er froskur sem er búinn að dunda sér þar síðustu vikurnar. Við höfum ekki komið okkur í það að "sleppa" honum aftur út í náttúruna því að hann virðist vera aðeins fatlaður greyið en erum nú samt ekki til í að halda hann sem gæludýr enda getum við ekki tekið við öllu sem kemur úr garðinum. Þetta fer að verða vandræðalegt, það er farið að kalla Magga Dagfinn dýralækni!
Um síðustu helgi fórum við í helgarferð til Köben og fengum þar góða gistingu hjá Kristínu og Fabian en þar gistu líka Alfreð, Björk og Pétur.
Pési prakkari tók vel á móti okkur þegar við komum.
Myndarlegir feðgar
Fabian með aðaltöffarana í Köben - Alexandre og Pétur!
Björk, Pétur og Maggi spennt að vera komin í Tívolí þrátt fyrir smá rigningu.Á laugardagskvöldið fórum við síðan að sjá útskriftarsýningu Ylfu og Davíðs "True love" en það var nú megintilgangur ferðarinnar.
Pétur stóð sig vel í að vekja Magga á morgnana.
Eins og sjá má reynum við Pétur alltaf að vera í stíl! :-)
Síðast þriðjudag vorum við boðin í grill til Söruh og Jakobs en í því fólst að Maggi þurfti að sjá um grillmennskuna - Sophie fylgdist þolinmóð með hvort eitthvað mundi detta af.
Sarah fylgdist líka vel úr eldhúsglugganum
en Emma bara skríkti og hló á meðan þessu stóð.
Jakob kom svo tímanlega heim - þegar eldamennskan var búin!
föstudagur, apríl 06, 2007
Stína Poppins
Ég brá mér í barnapíu-hlutverk um daginn og passaði dóttur Söruh, rúsínuna hana Emmu.
Og svo til að auka við ábyrgðina þá var ég líka að líta eftir hvolpunum hennar Sophie sem hún eignaðist fyrir 2 mánuðum. Þeir voru 6 en það er búið að selja einn núna og hinir verða seldir núna á næstu dögum.
Fyrst voru þeir mjög rólegir en þegar ég kíkti út í garð til þeirra þá færðist fjör í leikinn
Og ekki batnaði það þegar móðirin blandaði sér í málin.
Við spáðum mikið í að taka einn af hvolpunum en ákváðum á endanum að við hefðum ekki nógu mikinn tíma núna til að sinna því en það var erfitt að sleppa því þar sem þeir eru alveg hrikalega sætir!
miðvikudagur, apríl 04, 2007
Brussels baby!
Ferðin til Brussel var frábær og ég skemmti mér alveg konunglega. Við Linda lögðum í hann á laugardeginum og gistum eina nótt í Köben í góðu yfirlæti hjá Davíð og Ylfu þó við náðum því miður ekki að eyða miklum tíma með þeim. Vöknuðum síðan snemma á sunnudagsmorguninn til að fara út á Kastrup þar sem beið okkar lengsta tjékk-inn röð sem ég hef séð þar en við náðum nú öllu á góðum tíma.
Hér erum við Ane sama dag og við komum til Brussel. Eins og sjá má var svolítið kalt að sitja úti en við létum okkur hafa það.
Flesta dagana fengum við reyndar alveg brilljant veður – sólskin og hlýtt.
Tuperna, Linda, Ane og Jannie að slappa af.
Ég og Linda í European Council. Vegna manneklu vorum beðnar um að taka að okkur að vera staðgenglar fyrir Austurríki og Búlgaríu :-)
Við fórum og skoðuðum þessa byggingu sem kallast Atomium og var byggt fyrir heimssýninguna 1958.
Linda á leiðinni upp á milli kúla.
Við fórum út að borða á hverju kvöldi, alltaf á nýja veitingastaði. Hér má sjá hluta af hópnum (Ane, Tuperna, ég, Mai, Anna, Jannie, Linda (íslenska) og Linda (danska)) á grískum veitingastað þar sem við þóttum svo skemmtilegar að við vorum beðnar um að koma aftur kvöldið eftir (sem við gerðum reyndar ekki).
Í heildina litið var þetta alveg stórskemmtileg ferð í fallegri borg sem kom mér á óvart með fjölbreytileika sínum. Mér fannst ég læra mikið á því að fara í þessar heimsóknir, sérstaklega European Council, European Commission og European Parliament í stað þess að lesa bara um það í þurrum skruddum. Hostelið sem vorum á var betra en ég átti von á og ekki skemmdi fyrir að við Linda fengum eina 2ja manna herbergið, allir hinir voru í 4ja eða 6 manna herbergjum og fengum við því viðurnefnið prímadonnurnar. En við tókum bara þá stefnu að standa undir þeim titli! Heimferðin var ekki eins skemmtileg því ég var orðin veik og var skjálfandi úr kulda í lestinni til Horsens og var það því grár og gugginn sjúklingur sem Maggi tók á móti á lestarpallinum.
föstudagur, mars 09, 2007
Hamingjan!
Langt síðan maður hefur bloggað, kannski af því að það hefur lítið verið að gerast og því lítið til að blogga um. Samt finnst mér tíminn líða svo hratt hér, í mínum huga er þessi vorönn bara rétt byrjuð en kennararnir eru strax farnir að minna okkur á prófin og hvernig við eigum að undirbúa okkur fyrir þau. Þrátt fyrir að mér finnist fögin sem ég er í núna skemmtilegri og áhugaverðari heldur en ég var í fyrir jól er einhvern veginn svo dimmt yfir mörgu í skólanum. Það er kannski af því að það hafa svo margir af samnemendum mínum hætt og farið aftur til síns heimalands. Það sem byrjaði síðasta haust sem mjög alþjóðlegur og fjölbreyttur hópur er nú orðinn frekar einsleitur og samanstendur af nokkrum Dönum, 3 Íslendingum, nokkrum fyrrum Austantjalds-búum og 1 Kínverja. Þó að ég hafi nú trú á því að það muni lifna yfir þessu þá er ég samt farin strax að spá í hvað muni taka við þegar ég er búin í náminu. En ég ætti kannski ekki að vera að eyða of miklum tíma í að hugsa um það heldur bara njóta tímans núna því framtíðin mun alltaf koma hvernig svo sem hún verður.
Ég rakst einmitt á þetta á netinu um daginn og ég held að það sé ágætt að hafa þetta að leiðarljósi.
“Lengi vel fannst mér alltaf sem lífið væri rétt að byrja – þetta eina sanna líf. En það var alltaf eitthvað sem stóð í vegi fyrir því, eitthvað sem þurfti að yfirstíga fyrst, einhver ókláruð mál, tími sem þurfti að eyða í eitthvað, ógreiddar skuldir. Síðan myndi lífið byrja. Dag einn rann það upp fyrir mér að allar þessar hindranir voru lífið sjálft.”
Alfred. D Souza
En það þýðir nú samt ekki að maður geti ekki hlakkað til skemmtilegra hluta sem munu gerast í framtíðinni, til dæmis eins og það að ég er orðin mjög spennt fyrir Brussels-ferðinni sem ég fer í eftir 2 vikur og svo auðvitað að hitta mömmu í Köben í næsta mánuði :-)
Ég veit ekki alveg af hverju ég er svona heimspekileg í dag en það gæti kannski tengst söknuði eftir elskulegum eiginmanni en hann er núna í námsferð í Köben en kemur nú aftur heim í dag.
Og svona í lokin set ég inn eina mynd af mér og Jóhönnu skvís sem var tekin á þorrablótinu í síðasta mánuði, þar var mikið fjör og góður matur. Ég vil taka það fram að þetta er ekki þreyta sem er að hrjá okkur skvísurnar þarna (þó við lítum kannski smá þreytulega út), við erum bara að hvíla okkur aðeins eftir matinn!
miðvikudagur, febrúar 07, 2007
Tómlegt í kotinu
Alfreð, Björk og Pétur komu til okkar á sunnudaginn og fóru svo frá okkur í dag og er núna mjög tómlegt í húsinu hjá okkur enda var Pétur þrátt fyrir smæð sína búinn að leggja undir sig stóran hluta af því.

Pétur mættur á svæðið og kominn í náttfötin.

Maggi fór með liðið í skoðunarferð um Árósa meðan ég var í skólanum en ég hitti þau síðan þegar ég var búin í tímum.



Pétri finnst sveskjumauk gott.....

... alveg hrikalega gott!!

Það er alltaf gott að stripplast aðeins...
Síðasta laugardag fórum við til Óðinsvéa að hjálpa Albert og Siggu við flutning en þau eru nú flutt aftur á landið kalda.


Strákarnir að gera sig klára fyrir átökin

Allt að gerast!

Síðasta myndin af Danmerkur-deild buslugengisins

Svo var smá Söru-knús í lokin

Pétur mættur á svæðið og kominn í náttfötin.

Maggi fór með liðið í skoðunarferð um Árósa meðan ég var í skólanum en ég hitti þau síðan þegar ég var búin í tímum.



Pétri finnst sveskjumauk gott.....

... alveg hrikalega gott!!

Það er alltaf gott að stripplast aðeins...
Síðasta laugardag fórum við til Óðinsvéa að hjálpa Albert og Siggu við flutning en þau eru nú flutt aftur á landið kalda.


Strákarnir að gera sig klára fyrir átökin

Allt að gerast!

Síðasta myndin af Danmerkur-deild buslugengisins

Svo var smá Söru-knús í lokin
mánudagur, janúar 29, 2007
Komin upp til að anda!
Ok, kannski smá dramatískt en þannig leið mér á þriðjudaginn þegar ég kláraði síðasta prófið. Þessar rúmlegu 3 vikur sem fóru í að skrifa 2 lokaritgerðir voru alveg að gera út af við mig og svo er núna er bara tekin við bið að sjá hvernig gekk í þessum blessuðu kúrsum.
Annars höfðum við það rosalega gott um jólin, hittum fullt af fólki, fórum í matarboð, út að borða, átum yfir okkur (að sjálfsögðu – það voru jólin), fengum fullt af góðum gjöfum og reyndum svo að læra þegar tími gafst til. En aðaltímaþjófurinn má segja að hafi verið litla gullið hann Róbert frændi enda fær maður nú aldrei nóg af því að knúsa hann.
Annars höfðum við það rosalega gott um jólin, hittum fullt af fólki, fórum í matarboð, út að borða, átum yfir okkur (að sjálfsögðu – það voru jólin), fengum fullt af góðum gjöfum og reyndum svo að læra þegar tími gafst til. En aðaltímaþjófurinn má segja að hafi verið litla gullið hann Róbert frændi enda fær maður nú aldrei nóg af því að knúsa hann.
Litla krúsidúllan
Fórum í frábært matarboð hjá Álfheiði á Holtsgötunni
Kíktum í heimsóknir í Núpalindina þar sem var í boði góður matur, góðir drykkir og misgóð spilamennska!
Ragna og Ágústa komu í heimsókn til að kveðja okkur og þá varð Róbert alveg hugfanginn af Ágústu sem fannst nú ekki leiðinlegt að fá svona athygli.
Við eyddum síðan áramótunum í Óðinsvéum hjá Albert, Siggu og Söru Bergdísi ásamt Hjalta, Jóhönnu og Leonóru og höfðum við það rosalega gott þar þrátt fyrir að það gætti smá slappleika hjá Magga um kvöldið.
Allir að drífa sig út til að skjóta upp flugeldum
Spennan í hámarki....
... þó voru sumir spenntari en aðrir!
Annars höfum við haft nóg að gera núna í janúar fyrir utan lærdóminn. Fyrir 2 vikum var haldið partý hjá Nonna, skólafélaga Magga, og Soffíu konu hans fyrir alla Íslendinga sem eru á sömu önn og Maggi því fljótlega mun hópurinn splittast upp þegar hann fer í praktík út um allar trissur. Á síðasta þriðjudag hitti ég bekkinn minn í Árósum til að fagna próflokum. Ég hélt að þetta yrði nú bara smá hittingur með nokkrum bjórum þar sem þetta væri í miðri viku en úr þessu varð heljarinnar skrall og var ég alveg að til kl. 4 um nóttina. Þá er nú gott að eiga góða að eins og hana Lindu mína sem ljáði mér gistingu hjá sér. Síðasta helgi var síðan gönguhelgin mikla, Sophie hundurinn hennar Söruh var í pössun hjá okkur og var farið með hana í göngutúra víðsvegar um bæinn þó aðallega hér um Stensballe.
Um næstu helgi verður síðan nóg að gera, Brussels-partý á föstudaginn í Árósum, á laugardaginn munum við renna til Óðinsvéa að hjálpa Albert og Siggu að hlaða í gáminn þar sem þau eru að flytja aftur á klakann og um kvöldið erum við að fara í fertugsafmæli hjá skólafélaga Magga. Svo á sunnudaginn koma Alfreð, Björk og Pétur að heimsókn til okkar í 3 nætur – hlakka svo til að hitta þau!








